Föstudagur 3. maí, 2024
5.1 C
Reykjavik

Steinunn sakar Katrínu um landráð: „Þegar nú öðru sinni á að gefa frá okkur auðlindir okkar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Forsetaframbjóðandinn Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir vænir Katrínu Jakobsdóttur og Svandísi Svavarsdóttur um landráð í nýju myndskeiði sem birtist á Facebook í dag.

Steinunn Ólína varar við að nýtt „gjafakvótafrumvarp“ Katrínar Jakobsdóttur og Svandísar Svavarsdóttur, gæti orðið að veruleika en með því segir hún Íslendinga gefa einkaleyfishöfum í fiskeldi í hafi, „ótímabundin aðgang og yfirráð yfir okkar fallegu íslensku fjörðum á Vesturlandi og Austurlandi“.

„Nýtt gjafakvótakerfi.

Á meðan ég tók þátt í pallborðsumræðum í beinni útsendingu á móti Katrínu Jakobsdóttur og Höllu Tómasdóttur hjá Vísi í gær hófust á Alþingi Íslendinga umræður um frumvarp Svandísar Svavarsdóttur Vinstri – Grænum þá matvælaráðherra sem skilað var inn til þingsins þann 27. Mars síðastliðinn. Þann dag var Katrín Jakobsdóttir starfandi matvælaráðherra í fjarvist Svandísar sem þá var í veikindaleyfi.“

Þannig hefst ræða Steinunnar en næst varaði hún við samþykkt á frumvarpinu.

„Verði þetta frumvarp Katrínar Jakobsdótturr og Svandís Svavarsdóttir um lagareldi samþykkt, þá höfum við Íslendingar gefið einkaleyfishöfum í fiskeldi í hafi, ótímabundin aðgang og yfirráð yfir okkar fallegu íslensku fjörðum á Vesturlandi og Austurlandi. Þetta er smjörþefurinn af því sem íslensk sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hyggst fyrir.
Það skal enginn velkjast í vafa um að þetta er nýtt gjafakvótakerfi sem deilt verður út með leyfum fjarða á milli sem bæði má selja og leigja áfram meðan birgðir endast.

En birgðirnar munu ekki endast lengi, því litla sem enga ábyrgð eða skyldur skulu fjarðargafakvótaeigendurnir nýju bera gagnvart náttúru og lífríki Íslands. Afleiðingar ófyrirsjáanlegar og óafturkræfar munum við Íslendingar hinsvegar bera.“

Þá segir Steinunn að greinilegt sé að Katrín hafi „orðaði sér úr stjórnmálunum“ áður en frumvarpið fór til umræðu á þinginu.

- Auglýsing -

„Auðsýnt er að fyrrverandi forsætisráðherra forðaði sér úr stjórnmálunum áður en frumvarp hennar og Svandísar fór til umræðu í þinginu. Þetta gjafakvótafrumvarp ætlar hún að reyna að þvo hendur sínar af sér með forsetaframboði sínu.“

Í næstu orðum sínum segir hún auðséð að það skipti máli hver situr í embætti forseta Íslands þegar frumvarpið fer til atkvæðagreiðslu í þinginu.

„Nú illu heilli er að raungerast fyrir augum okkar um hvað málskotsréttur forseta Íslands fjallar og það mun því skipta máli hver situr í embætti forseta Íslands þegar frumvarp þetta mun fara í atkvæðagreiðslu í þinginu. Og verði þá í embætti forseta Íslands Katrín Jakobsdóttir þarf ekki að spyrja að leikslokum. Hver trúir því að hún í embætti forseta Íslands muni hafna frumvarpi því sem var samið af hennar flokksfólki í hennar ríkisstjórn? Hugtakið vanhæfi snýr öðrum þræði að yfirbragði kerfisins. Hafið á að vera yfir allan vafa hvort forseti Íslands sé hæfur þegar kemur að undirritun laga frá Alþingi.“

- Auglýsing -

Að lokum biðlar Steinunn til fjölmiðla að fjalla einungis fréttir af þessu máli, sem hún kallar „landráðamál“.

„Ég vil biðja fjölmiðlafólk þvert á ritsjórnir að sinna upplýsingaskyldu sinni og flytja almenningi engar fréttir aðrar en þær sem varða þetta óhuggulega, ég leyfi mér að segja, landráðamál sem i uppsiglingu er á Alþingi Ísland. Þegar nú öðru sinni á að gefa frá okkur auðlindir okkar.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -