Í dagbók lögreglu frá því í nótt er greint frá því að einn aðili hafi verið handtekinn í miðbæ Reykjavikur fyrir vörslu á fíkniefnum. Hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku
Þá var tilkynnt um innbrot og þjófnað á veitingastað í Laugardalnum og er málið í rannsókn. Samkvæmt heimildum Mannlífs er um vinsælan veitingastað að ræða.
Nokkrir ökumenn voru teknir fyrir að keyra of hratt eða keyra undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis.
Tilkynnt var um umferðarslys í Hafnarfirði. Ekki urðu nein slys á fólki samkvæmt lögreglu. Þá reyndi einstaklingur að kveikja í bíl í Kópavogi en vegfarandur slökktu eldinn. Einnig kviknaði í bíl í Grafarvogi og telur lögreglan að það hafi gerst út frá rafgeyminum. Bílinn er að talsvert skemmdur.
Komment