
Arnar Smári Lárusson opnar sig um sjálfsskaða og sjálfsvígshugsanir í einlægu viðtali við Heimildina en ítarleg úttekt Heimildarinnar ber nafnið Týndu strákarnir – sem fundu leiðina heim.
Í henni lýsa þrír menn, þar á meðal Arnar, reynslu sinni af kerfinu sem átti að grípa þá sem börn og unglingar.
Segir Arnar meðal annars frá því að vímuefni hafi ýtt honum dýpra í myrkrið.
„Þegar ég var að nota fór ég hratt í sjálfsvígshugsanir og -tilraunir. Á unglingsárunum gerði ég tilraunir sem hefðu getað endað þetta,“ segir Arnar við Heimildina en hann þurfti í kjölfarið að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi. „Þegar bættist á áföllin varð einhver uppgjöf innra með mér. Í hvatvísi var ég tilbúinn til að kveðja. Líklega hugsaði ég það ekki alla leið, en sársaukinn var of mikill og lífið of erfitt.“
Hann naut aðstoðar Barnaverndar og á BUGL fékk hann aðstoð geðlæknis og sálfræðings. „Það hjálpaði mér mikið. En svo var ég búinn að vera þarna svo lengi að mér fannst ég vera búinn að heyra þetta allt,“ segir Arnar en þakkar mömmu sinni mikið fyrir að hafa hjálpað sér í gegnum þetta allt.
„Ég á rosalega sterka móður sem var alltaf til staðar fyrir mig. Margir vina minna hefðu viljað eiga móður eins og hana.“
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
Komment