
Nóg var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt ef marka má dagbók hennar.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna óláta á fótboltaleik Víkings og danska liðsins Brondby. Stuðningsmenn voru með læti og leiðindi, þeim var vísað í burtu af vettvangi. Lögregla fylgdi þeim eftir á Ölver skammt frá, stuttu seinna var tilkynnt um hópslagsmál. Lögregla kom á vettvang og þar var enginn slasaður og enginn handtekinn. Lögregla þurfti að beita piparúða þegar mestu lætin voru. Einn tilkynnti lögreglu að hann var fyrir líkamsárás en ekki vitað um geranda.
Þá tilkynnti lögreglan einnig um að ónefnt knattspyrnufélag hafi ólöglega verið að selja áfengi á leik í gær og er málið í rannsókn.
Tilkynnt var um aðila detta af rafmagnshlaupahjóli. Hann var fluttur af sjúkraliði á bráðamóttöku og er hann grunaður um akstur á rafmagnshlaupahjóli undir áhrifum áfengis. Hann var svo handtekinn og látinn laus að blóðsýnatöku lokinni á slysadeild.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar með áhaldi. Þolandi fór á slysadeild með sjúkraliði og gerandi handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna rannsókn málsins.
Tilkynnt var um ökumann á bifreið að sveifla hafnaboltakylfu út um gluggann en sá aðili fannst ekki.
Farþegi ógnaði leigubílstjóra með hnífi. Lögreglan handtók viðkomandi og sett í fangaklefa vegna rannsókn málsins.
Komment