
„Hefurðu hugmyndir um hvað hægt sé að gera, svona fyrst þú ert mættur óþreyttur til leiks í baráttuna? Endilega segðu okkur hvað hægt er að gera til að aðstoða þau sem þjást í Súdan því ef baráttan fyrir Palestínu hefur verið erfið þá er hún fimmþúsundfalt erfiðari fyrir Súdan.“ Þannig hefst færsla Karenar Kjartansdóttur, fyrrverandi fjölmiðlakonu og almannatengils, í nýrri Facebook-færslu þar sem hún gagnrýnir „whataboutismann“ sem margir aðhyllast varðandi fjöldamorðin á Gaza og í Súdan.
Karen rökstyður í færslunni að þótt í báðum löndum ríkji mikil þjáning, „Tvö lönd. Sama sorg.“, þá séu eðli átaka og kröfur um aðgerðir afar ólíkar. Hún bendir á að á Gaza geri hernaðarlegt skipulag og skýrir gerendur mögulegt að beina gagnrýni og kröfum til ábyrgðaraðila, en í Súdan sé um víðfeðmt land að ræða þar sem ofbeldið dreifist milli margra hópa og aðila og ábyrgðin „dofnar í móðu fjölda gerenda“.
Karen segir að það sama fólk sem með traustri samúð hefur barist fyrir réttlætinu í Palestínu geri nú kröfur um að aðrir sýni „algjöra og samfellda réttlætisbaráttu“ fyrir öllu illu í heiminum áður en þeir sjálfir mega tala. Hún kallar þessa afstöðu „whataboutism“, og lýsir henni sem tækni til að þagga niður í þeim sem tala með því að setja fram ómögulegar kröfur. „En enn einu sinni eru þeir mættir, réttlætisriddarar whataboutismans.“
„Ég er með fréttir fyrir þetta lið. Það er nær undantekningalaust sama fólkið sem lætur sig varða aðstæður Íslendinga með fíknisjúkdóma, íslenskra barna í vanda og flóttafólks og sem berst fyrir réttlæti í Palestínu og Súdan.“
Hún skrifar meðal annars:
„Þeir sem sögðu ekkert eða gerðu lítið úr þjáningum Palestínumanna ... heimta nú hástöfum að aðrir en þau sjálf mótmæli ofbeldinu í Súdan. Ekki af samúð gagnvart Súdan heldur til að tryggja að enginn fái samúð nema með þeirra leyfi ...“
Karen tekur fram að „í báðum tilfellum eru það almenningur og börn sem þjást mest“ og hvetur eindregið þá sem koma fram með kröfur um aðgerðir fyrir Súdan til að sýna hvað þeir sjálfir eru að gera í verki:
„Hefurðu hugmyndir um hvað hægt sé að gera … Endilega segðu okkur hvað hægt er að gera til að aðstoða þau sem þjást í Súdan ...“
Í loka færslunnar gerir Karen skýra kröfu um virkni og samheldni: að þeir sem vilja styðja við flóttafólk eða upplýsa um stjórnvöld eða fulltrúa sem styðja við ofbeldið láti í sér heyra.

Komment