
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ráðið Dagbjart Gunnar Lúðvíksson sem aðstoðarmann sinn en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnarráðinu.
Þar segir að Dagbjartur Gunnar hafi lokið meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 með áherslu á samningarétt, alþjóðarétt og félagarétt. Síðast starfaði hann á laga- og stjórnsýsluskrifstofu utanríkisráðuneytisins en hefur komið víða við áður, þ.m.t. sem aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar, aðstoðarkennari við lagadeild Háskóla Íslands og verkamaður hjá Veitum.
„Dagbjartur er uppalinn á Blönduósi og hefur fjölbreytta reynslu af félagsstörfum, meðal annars sem varaformaður Orators, félags laganema við HÍ, og formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Þá tók Dagbjartur sæti á Alþingi sem varaþingmaður Viðreisnar árið 2022,“ segir í tilkynningunni
Hann er ekki sá eini sem starfar fyrir Daða en fyrir starfar Jón Steindór Valdimarsson sem aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra. Dagbjartur hefur þegar hafið störf.
Komment