
42 frábær tónlistaratriði tóku þátt í Músíktilraunum 2025. Mikil fjölbreytni var í stefnum og stílum atriðanna og aðsókn á bæði undan- og úrslitakvöld var með eindæmum góð.
Eftir æsispennandi úrslitakvöld þar sem 10 atriði kepptu var niðurstaða dómnefndar og símakosningar tilkynnt. Glæsileg verðlaun voru veitt: hljóðverstímar, spilamennska á tónlistarhátíðum, flug með Icelandair og úttektir í hljóðfæraverslunum svo dæmi séu nefnd. Öllum keppendum sem komust í úrslit er svo boðið í Hitakassann; námskeið haldið af Hinu húsinu, Tónlistarmiðstöð og Tónlistarborginni Reykjavík sem undirbýr ungt fólk fyrir feril í tónlist.
Eftirfarandi aðilar hlutu verðlaun á Músíktilraununum í ár og verður spennandi að fylgjast með þessu hæfileikaríka tónlistarfólki í framtíðinni:
- sæti: Geðbrigði
- sæti: j. bear & the cubs
- sæti: Big Band Eyþórs
Hljómsveit fólksins: Rown
EINSTAKLINGSVERÐLAUN
Söngvari Músíktilrauna
Þórhildur Helga Pálsdóttir, Geðbrigði
Gítarleikari Músíktilrauna
Ísleifur Jónsson, Sót
Bassaleikari Músíktilrauna
Aliza Kato í Nógu gott og Kyrsa
Hljómborðsleikari Músíktilrauna
Eyþór Alexander Hallsson í Big Bandi Eyþórs
Trommuleikari Músíktilrauna
Þorsteinn Jónsson í Big Bandi Eyþórs
Rafheili Músíktilrauna
Lucas Joshua Snædal Garrison í LucasJoshua
Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku
Geðbrigði
Höfundaverðlaun FTT
j.bear & the cubs
Komment