Margir Íslendingar eru hugsi yfir andláti níu ára stelpu sem lést í Reynisfjöru um Verslunarmannihelgina en þetta var sjötta banaslysið í Reynisfjöru á einum áratug. Einn af þeim sem er hugsi yfir þessu er rithöfundurinn Gunnar Helgason.
„Ég get ekki hættt að hugsa um litlu stelpuna sem dó í fjörunni,“ skrifar Gunnar í færslu um málið.
„Mér finnst mjög ótrúlegt að það sé ekki ekki hægt að gera neitt. Allar varúðarráðstafanir eru talaðar niður; það virkaði illa að vera með vörð, fólk les ekki skiltin, fólk fer ekki eftir viðvörunum ... það er eins og það sé verið að telja upp allt sem EKKI er hægt að gera,“ heldur hann áfram.

Hann kemur í framhaldi með nokkrar hugmyndir að hlutum sem hægt sé að gera. Hann segir að það gætu verið vitlausar en þetta verði að ræða. „Berja niður staura (mega vera fallegir) í sandinn og strengja kaðla á milli,“ er fyrsta hugmyndin sem Gunnar leggur til. „Þegar fólk dettur og berst út getur kaðallinn stoppað það eða fólk gripið í hann.“
EInnig leggur hann til að byggja útsýnispall og hafa á svæðinu björgunarhlut eins og í Baywatch sem hægt sé að skjóta í öldurnar
„Selja inn. Láta fólk vita af vánni í miðasölunni. Þannig myndi miðasalan sjálf verða björgunartæki. Fólk þyrfti að ná í/niðurhala/lesa leiðbeiningar og upplýsingar um vánna.
Miðaverðið þarf ekki að vera hátt heldur aðallega hugsað til að greiða kostnað við söluna,“ er önnur hugmynd frá rithöfundinum.
Þá vill hann sérþjálfa verði á svæðið og þeir þurfi að vera fleiri en tveir. Einnig leggur hann til að búin verði til alvöru skilti því núverandi skilti séu, því miður, hræðileg. Hann telur að bílastæðagjöldin á svæðinu geti borgað fyrir þetta allt saman.
Að lokum spyr hann fylgjendur sína hvort þeir séu með fleiri hugmyndir sem gætu hjálpað.
Komment