
Eins og Mannlíf greindi frá í gær var fyrirlestri Gil S. Epstein, prófessor í hagfræði við Bar-Ilan-háskólann í Ísrael, um gervigreind aflýst vegna mótmælaaðgerða.
Fyrirlesturinn, sem átti halda í Þjóðminjasafninu, hóf ekki göngu sína vegna þess að mótmælendur trufluðu hann áður en hann hófst. Fyrirlestrinum var í kjölfarið aflýst. Ingólfur Gíslason, aðjúnkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands, telur að samstarf Bar-Ilan háskólans við hernaðaryfirvöld í Ísrael jafngildi beinni þátttöku í mannréttindabrotum.
„Það má lesa víða um það hvernig Bar-Ilan háskóli styður hernað ríkisins með fjölbreyttum hætti og yfirlýstan stuðning skólans við hernaðinn, landránið og ýmsar leiðir til að styðja við hvorutveggja. Það finnast engin merki um að prófessorinn hafi á nokkurn hátt beitt sér gegn hernáminu eða þjóðarmorðinu,“ skrifaði Ingólfur færslu á samfélagsmiðlum.

Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var einn af þeim sem stóð fyrir fyrirlestri Epstein og varði hann í yfirlýsingu. „Það var mat skipuleggjanda að ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórna og koma í veg fyrir að þeir geti lýst niðurstöðum rannsókna sem eru alls óskyldar stjórnmálum og styrjöldum svo fremi sem ekki sé sýnt fram á ábyrgð þeirra á óhæfuverkum.“
Samkvæmt Gylfa eru tengsl Epstein við stjórnvöld í Ísrael þau að hann sitji í ráðgjafaráði um gervigreind og fyrirlesturinn hafi átt að vera ópólitískur.

Komment