
Kvikuhlaup stendur yfir í nágrenni Grindavíkur og virðist kvika vera að leita að nýrri leið upp í gegnum jarðskorpuna. Uppfært: Eldgos er hafið suðaustan við Þorbjörn og teygir sprungan sig undir varnargarðinn norður af Grindavík.
„Miðað við vindátt núna mun gasmengun frá eldgosinu berast í norðaustur í átt að höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar.
Viðbragðsaðilar finna fyrir jarðskjálftum inni í bænum og merki sjást þar um aflögun. Því er mögulegt að sprunguhreyfingar eigi sér stað inni í bænum, að sögn Veðurstofu Íslands.

„Merki frá aflögunarmælum eru sterkari en sést hafa í síðustu atburðum á Sundhnúksgígaröðinni. Það sýnir að talsvert magn kviku er á ferðinni. Merkin sem sjást sýna að kvikan er að hreyfa sig bæði til norðausturs en einnig til suðurs í átt að Grindavík. Á þessu stigi er ekki hægt að fullyrða um hvar kvikan muni koma upp, en færslan á aflögunarmerkjum til suðurs sáust til að mynda ekki í eldgosinu sem hófst í nóvember 2024,“ segir í umfjöllun Veðurstofunnar.
Rýmingu Grindavíkur er lokið en samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins neita 8 manns að yfirgefa bæinn.
Skjálftar hafa verið að mælast á 3 kílómetra dýpi undir Grindavík, ef marka má skjálftayfirlit Veðurstofunnar. „Það er helsta áhyggjuefnið núna,“ sagði Runólfur Þórhallsson hjá almannavörnum í samtali við RÚV. Verið er að fara yfir sviðsmyndir sem tengjast þessari þróun.
Auk þess að skjálftavirkni teygi sig nú suður til Grindavíkur hefur hún aukist norðaustan megin Sundhnúkagígaraðarinnar, nær Vogum á Vatnsleysuströnd.

Komment