
Icepharma hf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum MUNA Döðlur steinlausar en varan getur verið byrjuð að gerjast og er því óhæf til neyslu.
Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig geta þeir skilað henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
Vörumerki: MUNA
Vöruheiti: Döðlur steinlausar
Nettómagn: 500 g
Geymsluþol: Best fyrir 31.10.2026
Lotunúmer: BN558880
Strikamerki: 5694230036035
Framleiðsluland: Þýskaland
Innflytjandi: Icepharma hf., Lynghálsi 13, 110 Reykjavík
Dreifing:
Verslanir Krónunnar; Nettó Hafnarfirði, Ísafirði, Borgarnesi, Húsavík, Mjódd, Akureyri, Salavegi, Hrísalundi, Höfn í Hornafirði, Eyrarvegi, Selfossi, Sunnukrika, Krossmóa, Egilsstöðum, Granda, Glæsibæ, Lágmúla, Selhellu; Kjörbúðin Blönduósi, Skagaströnd, Þórshöfn, Grundarfirði, Seyðisfirði, Neskaupstað; Krambúðin Búðardal, Laugalæk; 10-11 Laugavegi; Iceland Hafnarfirði; Fjarðarkaup; Kaupfélag V-Húnvetninga; Hlíðarkaup.
Komment