
Tveir heimilislausir karlmenn hafa greinst með berkla en RÚV greinir frá þessu.
Samkvæmt frétt RÚV hafa mennirnir dvalið í gistiskýlum í Reykjavík og á kaffistofu samhjálpar og því mögulega útsett aðra fyrir smiti. Í viðtali við Kristínu Davíðsdóttur og Önnu Tómasdóttur hjúkrunarfræðinga segja þær frá því að erfitt sé að smitrekja fólk sem hefur ekki fasta búsetu og á ekki farsíma.
Þær segja frá því að Afstaða, félag fanga, hafi veitt aðstoð og þá hafi heimilislaus maður verið tengiliður við annað fólk án heimilis og veitir upplýsingar um staðsetningar fólks.
Þá hafa fleiri heimilislausir greinst með berklasmit en mennirnir tveir en þau smit eru óvirk og því ekki hægt að tengja smitin saman. Hjúkrunarfræðingarnir segjast þó ekki hafa miklar áhyggjur af útbreiðslu í samfélaginu en benda á úrræðaleysi sem ríkir á Íslandi ef stærri smit koma upp í viðkvæmum hópnum. Meðal annars vanti skipulagða umgjörð um smitrakningu.
Komment