
Samkvæmt lögreglu í dagbók hennar var hún kölluð til þar sem ekið var á mann á rafhlaupahjóli en maðurinn var ekki slasaður eftir óhappið.
Tilkynnt var um mann með hníf á hóteli. Maðurinn hafði verið í útistöðum við annan mann þegar hann tók upp hníf og ógnaði honum. Skömmu síðar var gerandi handtekinn á vettvangi og vistaður í þágu rannsóknar málsins.
Tilkynnt var um ofurölvi aðila á krá í hverfinu. Í fyrstu neitaði aðilinn að yfirgefa krána eftir fyrirmæli lögreglu og þurfti að færa aðilann út. Þar neitaði aðilinn að gefa upp kennitölu en að endingu reyndi lögregla að aka viðkomandi heim. Þegar þangað var komið neitaði einstaklingurinn þá að fara út úr lögreglubifreiðinni og endaði málið þannig að vista þurfti aðilann í fangaklefa þangað til vímuástandið yrði skárra.
Ökumaður var stöðvaður í akstri þar sem hann ók án réttinda en sá hefur ítrekað verið stöðvaður fyrir það.
Annar ökumaður var stöðvaður í akstri þar sem hann ók án réttinda. Sá var einnig með meint þýfi í bifreiðinni. Málið er í rannsókn samkvæmt lögreglunni.
Komment