1
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

2
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

5
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

6
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

7
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

8
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

9
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

10
Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Til baka

Hraðara landris en áður: Kvikugangur nálægt Reykjanesbraut

„Líkur á endurteknum kvikuhlaupum og jafnvel eldgosum“.

Eldgos Grindavík
Gosið 1. aprílÓttast var um byggðina í Grindavík þegar gosrás opnaðist innan varnargarðsins, en kvikan hljóp þess í stað til norðausturs í áttina að höfuðborgarsvæðinu.
Mynd: Björn Oddsson / Almannavarnir

Landris er hraðara nú í Svartsengi en í kjölfar síðustu eldgosa. Því virðast spár jarðvísindamanna um endalok eldgosahrinunnar á Sundhnúksgígaröðinni vera ótímabærar.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að skýringin getur legið í því hversu mikið tæmdist úr kerfinu í kvikhlaupi 1. apríl, þar sem kvikugangur teygði sig langleiðina í áttina að Reykjanesbraut og hálfa leið til Hafnarfjarðar.

„Aflögunargögn sýna skýrt merki um að landris haldi áfram undir Svartsengi. Landris mælist nú hraðara en eftir síðustu eldgos. Það gæti skýrst af því hversu mikið rúmmál kviku fór úr kerfinu í þessum síðasta atburði,“ segir Veðurstofan.

Kvikugangurinn er sá stærsti sem myndast hefur frá 10. nóvember 2023, þegar miklar skemmdir urðu í Grindavík. Óttast var að gjósa myndi nærri Reykjanesbrautinni og Vogum í Vatnsleysuströnd, en kvikan var á eins til eins og hálfs kílómetra dýpi. Svo fór ekki, en atburðarásin heldur áfram.

„Hins vegar er enn of snemmt að segja til um áframhaldandi þróun á hraða kvikusöfnunarinnar. Reynsla frá fyrri atburðum sýnir þó að hraði kvikusöfnunar minnkar yfirleitt eftir því sem líður á kvikusöfnunartímabilið milli gosa. Bíða þarf í allavega viku, mögulega nokkrar vikur, til að segja til um hvort og þá hversu mikið hraði kvikusöfnunar mun breytast,“ segir Veðurstofan.

Jarðskjálftar frá 4 apríl til 8 apríl
Kvikugangurinn séstMyndin sýnir jarðskjálfta frá seinni parti föstudagsins 4. apríl til dagsins í dag. Þar kemur fram hvernig kvikugangurinn hefur þrýst sér leið skáhallt gegnum Reykjanesskagann. Rauðir punktar eru nýlegri og bláir eldri.
Mynd: Veðurstofan

Smáskjálftavirkni er áfram við kvikuganginn, vestan og norðvestan við Keili, sem og skammt vestan við Kleifarvatn.

Veðurstofan mun því halda áfram nánu eftirliti.

„Miðað við þau gögn sem liggja fyrir er ljóst að innflæði kviku undir Svartsengi heldur áfram og er því atburðarásinni á Sundhnúksgígaröðinni ekki lokið. Á meðan kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi eru líkur á endurteknum kvikuhlaupum og jafnvel eldgosum. Veðurstofan heldur áfram að vakta svæðið og meta mögulegar sviðsmyndir út frá nýjustu gögnum.“

Einn helsti eldfjallafræðingur Íslands, Ármann Höskuldsson, spáði því í febrúar að eldgosahrinunni færi að ljúka, þar sem hægst hefði á landrisinu. „Það er ekkert ó­lík­legt að þessi Sundhnúkssyrpa sé að koma að enda­lokum,“ sagði hann í samtali við Stöð 2. Nú virðist ný staða hafa opnast.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Laxness slær í gegn hjá The Guardian
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Helgi Ólafsson er fallinn frá
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi
Heimur

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við
Innlent

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við

Loka auglýsingu