
Jóhann Hlynur Ólafsson hefur verið dæmdur 60 daga skilorðsbundið fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur.
Jóhann var fundinn sekur um að aka bíl undir áhrifum ávana- og fíkniefna og að hafa „án nægilegrar aðgæslu og varúðar og bakkað bifreiðinni á gangandi vegfaranda með þeim afleiðingum að hún hlaut brot á sköflungi á vinstri fót og brot á hægri ökkla.“
Jóhann játaði brot sitt en í dómnum er tekið fram að hann hafi í ágúst 2023 verið sviptur ökuréttindum í 18 mánuði. Var honum því gerður hegningarauki vegna þess. Þá segir að þó hann hafi játað brot sitt verði ekki litið framhjá því að með háttsemi sinni olli hann gangandi vegfaranda líkamsmeiðingum.
Dómur Jóhanns er skilorðsbundinn til tveggja ára og var hann einnig sviptur ökurétti í níu mánuði. Þá þarf hann að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns 225.990 krónur, og 111.361 krónu í annan sakarkostnað.
Komment