
Leikarinn og þingmaðurinn Jón Gnarr, rifjar upp æsku sína og fjölbreytt mataræði í nýrri færslu á Facebook, og lýkur henni með spurningu sem margir gætu nú tekið að velta fyrir sér: hvort hægt sé að kaupa súra síld, eða surströmming, hér á landi.
„Ég er alinn upp á misjöfnum mat,“ skrifar Jón og heldur áfram:
„Pabbi var fæddur frostaveturinn mikla 1918 og ólst upp á og við Breiðafjörð. Mamma vann í mötuneytinu á Borgarspítalanum og kom oft með matarafganga þaðan.“
Jón segir að sem barn hafi hann borðað ýmis konar mat sem ekki þætti öllum sjálfsagður á borðum í dag.
„Sem barn át ég saltað selspik, súrsað allskonar, kokteilávexti með rjóma, svartbaksegg, ávaxtagrauta, svið, hjörtu og nýru, lifur, seríós, normalbrauð með asíum eða jafnvel kartöflum, Royal búðing, kæsta skötu og grillaðar ostasamlokur.“
Þetta hafi orðið til þess að hann sé opinn fyrir alls kyns bragðtegundum, og ekki síst sænskri súrri síld.
„Það var því engin fyrirstaða innra með mér, þegar ég bjó í Svíþjóð, að bragða á og éta súra síld. Ég bjó meira að segja í Norrlandi. Það er vissulega soldið vond lykt af henni en hún bragðast mjög vel finnst mér.“
Jón segir að hann hafi ætlað sér að kaupa nokkrar dósir af surströmming þegar hann var nýverið í Stokkhólmi, en orðið fyrir vonbrigðum:
„Þegar ég var í Stokkhólmi á dögunum hafði ég hugsað mér að kippa með mér nokkrum dósum á flugvellinum en komst þá að því að það er búið að banna sölu á þessu sælgæti á Arlanda flugvelli.“
Hann endar færsluna með einfaldri spurningu til landsmanna:
„Þannig að ég spyrst nú fyrir hvort hægt sé að kaupa surströmming hér á landi?“

Komment