1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

5
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

6
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

7
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

8
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

9
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

10
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Til baka

Leggur til að Garpsdalur fari í orkunýtingarflokk rammaáætlunar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggur til að virkjunarkosturinn Garpsdalur í Reykhólahreppi verði settur í orkunýtingarflokk rammaáætlunar

Jóhann Páll ráðherra
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherraVill að vindmyllur rísi í Garpsdal
Mynd: Stjórnarráðið

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur lagt til að virkjunarkosturinn Garpsdalur í Reykhólahreppi verði settur í orkunýtingarflokk rammaáætlunar.

Hefur tillaga ráðherra verið birt í samráðsgátt stjórnvalda, en með henni er lögð til breyting á tillögu verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaáætlunar sem lagði til við ráðherra í maí síðastliðnum að allir 10 vindorkukostirnir í 5. áfanga rammaáætlunar færu í biðflokk.

Segir í tilkynningu að þetta sé í fyrsta sinn sem ráðherra leggur til þá breytingu á tillögu verkefnisstjórnar að virkjunarkostur fari í nýtingarflokk.

Í rökstuðningi Jóhanns Páls er bent á að virkjunarkosturinn hafi fengið jákvæðari umsagnir frá faghópum rammaáætlunar en aðrir kostir sem voru til umfjöllunar; bæði hvað varðar áhrif á náttúru og samfélag, og það að meiri sátt virðist ríkja um kostinn í nærsamfélaginu en um aðra vindorkukosti.

Segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins að lögð sé áhersla á aukna orkuöflun í þágu orkuöryggis, orkuskipta og verðmætasköpunar um allt land og að mati ráðherra eigi þeir virkjunarkostir að ganga fyrir sem eru í senn hagkvæmir og fela í sér minnstu umhverfisáhrifin:

„Við tökum eitt skref í einu í vindorkunni og gefum ekki grænt ljós á frekari framkvæmdir fyrr en skýr rammi og lagaumgjörð liggur fyrir“ segir Jóhann Páll og bætir því við að þar verði lögð áhersla á að verja „náttúruverðmætin sem við eigum hérna saman og tryggja sátt og samstöðu í nærsamfélaginu.“

Jóhann Páll segir að Garpsdalur í Reykhólahreppi sé sá vindorkukostur sem hefur fengið jákvæðustu umsögnina frá faghópum rammaáætlunar, bæði hvað varðar áhrif á náttúru og samfélag og hefur hann því „ákveðið að setja af stað samráðsferli um að Garpsdalur fari í orkunýtingarflokk rammaáætlunar og stefni að því að leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis samhliða kynningu á vindorkustefnu og breyttri lagaumgjörð um vindorkunýtingu á næsta löggjafarþingi.“

Hann nefnir að aðrir vindorkukostir í tillögum verkefnisstjórnarinnar muni fá áframhaldandi umfjöllun hjá nýrri verkefnisstjórn rammaáætlunar sem skipuð var 12. júní 2025, en í „skipunarbréfi hennar kemur fram að við tillögugerð skuli tekið mið af markmiðum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um aukna raforkuöflun í þágu orkuöryggis, orkuskipta og verðmætasköpunar um allt land.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Laxness slær í gegn hjá The Guardian
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Helgi Ólafsson er fallinn frá
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi
Heimur

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Loka auglýsingu