1
Heimur

Níu ára stúlka lést eftir svæfingu á tannlæknastofu

2
Fólk

Ásdís Rán ljómaði í leðri um helgina

3
Innlent

Veitingastöðum Mandi tímabundið lokað - Söluferli í gangi

4
Heimur

Smábarn fannst ráfandi um fjölfarna götu

5
Menning

Dánarfregnir í Vestur-Húnavatnssýslu

6
Heimur

Trump: „Sársaukinn er að koma“

7
Heimur

Skoðaði fanga með margmilljóna Rolex

8
Landið

Sérsveitin send til Grindavíkur vegna byssumanns

9
Innlent

Aprílgöbb dagsins: Tréfættur kettlingur, hjónavígslur í Hagkaup og bugaður Teslu-eigandi

10
Innlent

Samlegðaráhrif af sjónmengun þriggja vindmyllugarða við höfuðborgina

Til baka

Lík 14 heilbrigðisstarfsmanna fundin á Gaza

„Ef þetta atvik hefði átt sér stað annars staðar hefði allur heimurinn brugðist við af hörku“

Gaza
Starfsmenn Rauða hálfmánansViðbragðsaðilar syrgja fallna samstarfsmanna.

Rauði hálfmáninn í Palestínu (PRCS) greinir frá því að 14 lík hafi fundist í Rafah, í suðurhluta Gaza, viku eftir að viðbragðsaðilar samtakanna urðu fyrir skothríð ísraelskra hersveita.

PRCS sagði í dag að átta lík hefðu verið auðkennd sem meðlimir samtakanna, fimm sem meðlimir borgaralegs varnarliðs og eitt sem starfsmaður hjá stofnun Sameinuðu þjóðanna. Einn sjúkraflutningamaður PRCS er enn saknað.

Forseti PRCS, Younis al-Khatib, fordæmdi Ísrael fyrir að ráðast á sjúkraflutningamenn á meðan þeir „sinntu mannúðarhlutverki sínu“.

„Þessar sálir eru ekki bara tölur. Ef þetta atvik hefði átt sér stað annars staðar hefði allur heimurinn brugðist við af hörku til að upplýsa um þessa stríðsglæpi,“ sagði al-Khatib.

Hann bætti við að fyrir tveimur dögum hefði björgunarteymi, með aðstoð skrifstofu Sameinuðu þjóðanna fyrir samhæfingu mannúðarmála (OCHA), náð að komast á vettvanginn þar sem áhöfnin hvarf og fann lík áhafnarmeðlims sem hafði verið grafið.

„Það eru nokkrar mögulegar skýringar á því sem gerðist … Eftir meira en viku án samskipta við áhöfn okkar, annað hvort hafa þau verið drepin eða tekin höndum af ísraelska hernámsliðinu,“ sagði al-Khatib.

Í síðustu viku sagði ísraelski herinn við AFP fréttastofuna að hann hefði skotið á sjúkrabíla og slökkvibíla, sem hann kallaði „grunsamleg farartæki“, er þau komu á vettvang þar sem Ísrael var að framkvæma árásir.

Basem Naim, meðlimur í stjórmálaarmi Hamas, fordæmdi árásina á sjúkrabílinn og sagði að „markviss dráp á björgunarfólki, sem nýtur verndar samkvæmt alþjóðalögum, séu gróf brot á Genfarsáttmálanum og stríðsglæpur“.

Tom Fletcher, yfirmaður OCHA, sagði að síðan Ísrael braut vopnahléið í Gaza 18. mars og hóf árásir á ný, hafi ísraelskar loftárásir beinst gegn „þéttbýlum svæðum“, þar sem „sjúklingar hafa verið drepnir í sjúkrarúmum sínum, skotið hefur verið á sjúkrabíla og fyrstu viðbragðsaðilar hafa verið drepnir“.

Heilbrigðisráðuneyti Gaza tilkynnti á laugardag að síðan Ísrael hóf árásir á ný, hefðu að minnsta kosti 921 manns verið drepnir á svæðinu, sem bætist við að minnsta kosti rúmlega 50.000 manns sem hafa látist frá 7. október 2023.


Komment


Reykjanesskagi skjálftar
Innlent

Stórir skjálftar og kvikugangur á hreyfingu

AFP__20250221__36YC6PQ__v1__HighRes__UsCrimeInsuranceHealthcareCourtMagione
Heimur

Dómsmálaráðherra krefst dauðarefsingar yfir Luigi Mangione

Löggan
Innlent

Þrír slasaðir eftir rútuárekstur í miðborginni

Emmerson Mnangagwa forseti
Heimur

Tugir handteknir í Simbabve fyrir mótmæli

Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður Morgunblaðsins
Innlent

Blaðamenn Morgunblaðsins tókust á um Sjálfstæðisflokkinn

IMG_0478
Innlent

Félagið Ísland-Palestína fundaði með Þorgerði Katrínu

gabb
Innlent

Aprílgöbb dagsins: Tréfættur kettlingur, hjónavígslur í Hagkaup og bugaður Teslu-eigandi

Gos grindavík
Innlent

Kvikugangurinn aldrei verið lengri