
Fjölmiðlamaðurinn fyrrverandi Logi Bergmann Eiðsson snýr aftur í fjölmiðla í apríl þegar hann verður spyrill og spurningasmiður Spurningakeppni fjölmiðlanna á Bylgjunni. Þrjú ár eru liðin síðan Logi stjórnaði síðast útvarpsþætti.
Logi var rekinn frá störfum sínum hjá útvarpsstöðinni K100 árið 2022 þegar Vítalía Lazareva sakaði hann og fjóra aðra karlmenn um að hafa brotið á sér kynferðislega. Logi neitaði alltaf staðfastlega að hafa brotið á Vítalíu og var málinu að lokum vísað frá lögreglu.
Mannlíf fjallaði um leynilega upptöku í febrúar síðastliðnum þar sem Logi ræðir við kærasta Vítalíu, Arnar Grant í síma, um ásakanir hennar. Þar segir Arnar meðal annars að Vítalía hafi misnotað Me-Too byltingunni: „Þegar konur eru svo farnar að misnota þetta og ganga svo fram til að hefna sín. Það er svo rosalega ljótt að gera þetta. Ef að fólk vissi að á sama tíma og hún er að gera þetta er hún að biðja um peninga.“
Fjölmiðlaferill Loga Bergmanns er ansi langur og yfirgripsmikill en hann byrjaði ferilinn sem blaðamaður hjá Þjóðviljanum 1986-1988 en hann hefur starfað á miðlum á borð við Morgunblaðið, Ríkisútvarpinu, K100 og Stöð 2. Logi flutti með eiginkonu sinni, Svanhildi Hólm Valsdóttur, til Washington í fyrra þegar hún tók við embætti sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.
Sem fyrr segir snýr Logi nú aftur á ljósvakamiðla en hann verður spyrill í Spurningakeppni fjölmiðlana, líkt og hann gerði áður á árunum 2009-2017 en hann mun einnig semja spurningarnar. Spurningakeppninni verður útvarpað á Byljgunni yfir páskahátíðina.
Komment