
Maður í New York borg réðst á fjórar ólögráða stúlkur, að minnsta kosti sumar þeirra eru ættingjar hans, að sögn lögreglu. Myndband náðist af lögreglunni að bera meintan árásarmann út úr byggingunni.
Samkvæmt lögreglunni í New York borg fékk hún símtal frá 11 ára gamalli stúlku í Brooklyn í gær sem sagði að frændi hennar hefði stungið hana og systkini hennar. Lögreglan flýtti sér á vettvang og hljóp inn í bygginguna þar sem þeir segjast hafa heyrt öskur bak við eina hurðina.
Þeir brutust inn í íbúðina og samkvæmt lögreglustjóra New York borgar, Jessica Tisch, fundu þeir mann sem hélt á kjötexi útötuð blóði og voru veggir einnig útataðir í blóði. Lögreglumenn sögðu manninum að leggja exina frá sér nokkrum sinnum, segir Tisch en hann neitaði því og gekk að þeim og þá skutu þeir hann „og bundu endi á ógnina.“
New York Post hefur fengið myndir frá vettvangi eftir árásina, þar á meðal eina af fórnarlambi, sem er nær alveg útatað í blóði, þó það standi enn á fótum. Lögreglan segir að fjórar stúlkur – 16, 13, 11 og 8 ára – hafi allar verið fluttar á sjúkrahús en samkvæmt nýjustu upplýsingum eru þær á lífi og búist er við að þær nái sér.
Að auki segir lögreglan að fimmta barnið, ungur drengur, hafi verið á vettvangi og opnað þeim dyrnar. Hann slapp ómeiddur.
Komment