1
Heimur

Níu ára stúlka lést eftir svæfingu á tannlæknastofu

2
Innlent

Veitingastöðum Mandi tímabundið lokað - Söluferli í gangi

3
Fólk

Ásdís Rán ljómaði í leðri um helgina

4
Menning

Dánarfregnir í Vestur-Húnavatnssýslu

5
Heimur

Smábarn fannst ráfandi um fjölfarna götu

6
Heimur

Trump: „Sársaukinn er að koma“

7
Heimur

Skoðaði fanga með margmilljóna Rolex

8
Landið

Sérsveitin send til Grindavíkur vegna byssumanns

9
Innlent

Aprílgöbb dagsins: Tréfættur kettlingur, hjónavígslur í Hagkaup og bugaður Teslu-eigandi

10
Innlent

Samlegðaráhrif af sjónmengun þriggja vindmyllugarða við höfuðborgina

Til baka

Maður vopnaður hnífi handtekinn

Ógnandi aðila vísað burt úr bráðamóttökunni

Lögreglan
Mynd: Lára Garðarsdóttir

Tveir gista fangageymslur eftir verkefni lögreglunnar frá fimm í morgun. Alls komu upp tæplega 50 mál á höfuðborgarsvæðinu. Hér má sjá nokkur dæmi.

Lögreglan sem annast verkefni í Austurbæ, Vesturbæ, miðborginni og á Seltjarnarnesi komu konu til bjargar þar sem hún var ósjálfbjarga sökum ölvunar. Var hún vistuð í fangageymslu þar til ástand hennar batnar.

Maður sem viðhafði ógnandi hegðun var vísað út af bráðamóttöku Landspítalans. Heimtaði hann þar lyf en þar sem slíkt þarfnast aðkomu læknis og lyfseðils fékk hann þau ekki í hendurnar. Var farið yfir það með honum og eftir ítrekun hélt hann sína leið.

Þá þurfti einnig að vísa manni og konu út af Landspítalanum sem voru þar í óleyfi og óvelkomin.

Tilkynning barst um slagsmál á milli sex manns í félagslegu úrræði. Var ástandið orðið rólegt þegar lögreglu bar að og gat hún rætt málin við þá sem málið varðaði.

Lögreglan sem vinnur í Hafnarfirði og Garðabæ aðstoðaði leigubílstjóra vegna farþega sem neitaði að borga farið.

Einn af sama svæði var vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar á heimilisofbeldi.

Tilkynning barst um umferðaróhapp en ökumaður hafði þá ekið á ljósastaur og var bifreiðin óökufær. Ekki fylgdi dagbókarfærslu lögreglunnar hvort slys hafi orðið á fólki.

Þá barst lögreglunni sem annast verkefni í Kópavogi og Breiðholti tilkynning um mann sem var að elta annan með hníf í hendi. Handtók lögreglan manninn en samkvæmt dagbók lögreglunnar virðist sem mikið hafi gengið á. Sá handtekni verður kærður fyrir akstur undir áhrifum, sölu fíkniefna og vopnaburð á almannafæri, svo eitthvað sé nefnt.

Tvö ökutæki lentu í umferðaslysi á svipuðu svæði fyrir stuttu en lögregla og sjúkralið er nú á vettvangi. Lögreglan hafði ekki frekari upplýsingar sökum þess hversu stutt var síðan slysið varð.


Komment


Reykjanesskagi skjálftar
Innlent

Stórir skjálftar og kvikugangur á hreyfingu

AFP__20250221__36YC6PQ__v1__HighRes__UsCrimeInsuranceHealthcareCourtMagione
Heimur

Dómsmálaráðherra krefst dauðarefsingar yfir Luigi Mangione

Löggan
Innlent

Þrír slasaðir eftir rútuárekstur í miðborginni

Emmerson Mnangagwa forseti
Heimur

Tugir handteknir í Simbabve fyrir mótmæli

Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður Morgunblaðsins
Innlent

Blaðamenn Morgunblaðsins tókust á um Sjálfstæðisflokkinn

IMG_0478
Innlent

Félagið Ísland-Palestína fundaði með Þorgerði Katrínu

gabb
Innlent

Aprílgöbb dagsins: Tréfættur kettlingur, hjónavígslur í Hagkaup og bugaður Teslu-eigandi

Gos grindavík
Innlent

Kvikugangurinn aldrei verið lengri