
MAST á SelfossiMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Matvælastofnun varar við neyslu á Jelly strip XL, sem Lagsmaður flytur inn en þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST
Varan inniheldur óleyfilegu aukefnin E407, E410 og E415 og getur verið hættuleg m.t.t. köfnunar og þá sérstaklega fyrir börn. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum Evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF.
Einungis er verðið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
Vara: Jelly strip XL
Vörumerki: Jin Jin
Geymsluþol: b.f. 05.05.2026
Framleiðandi: Jellico Food Co Ltd
Framleiðsluland: Taiwan
Innflytjandi: Lagsmaður
Dreifing: Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur

Mynd: MAST
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment