
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg er greint frá því að hlutfall negldra dekkja og ónegldra hafi verið reiknað í byrjun mars eftir talningu. Hlutfallið skiptist þannig að 40% ökutækja í Reykjavík eru á negldum dekkjum og 60% á öðrum dekkjum og er hlutfallið því aðeins lægra en það var í janúar en þá var það 43%
„Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 38% á nöglum og 62% á ónegldum. Fyrir tveimur árum var hlutfallið einnig á sama veg eða 40% en fyrir þremur árum var það 41,5% og fyrir fjórum árum var það 41%. Hlutfallið er því búið að vera sambærilegt á þessum tíma árs, síðastliðin fjögur ár eða í kringum 40%. Næsta talning er áætluð um miðjan apríl,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

Komment