1
Innlent

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“

2
Innlent

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots

3
Pólitík

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“

4
Heimur

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum

5
Innlent

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis

6
Heimur

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein

7
Fólk

Gullfallegt hús á risastórri lóð til sölu

8
Innlent

Lögreglan leitar að Heklu

9
Pólitík

Sigmundur Davíð harðneitar tengslum við MAGA-hreyfinguna

10
Innlent

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð

Til baka

Nýifoss þornar upp ef Hagavatnsvirkjun verður að veruleika

Skipulagsstofnun hefur ekki enn lokið við gerð álits síns.

Nýifoss
NýifossÞessi ungi og fallegi foss gæti horfið von bráðar.
Mynd: Einar Páll Svavarsson

Fyrirtækið Hagavatnsvirkjun ehf. hyggst reisa 9,9 megavatta vatnsaflsvirkjun við Hagavatn, sunnan Langjökuls í Bláskógabyggð.

Samkvæmt áformunum yrðu reistar tvær stíflur: önnur ofan við núverandi útrás vatnsins, fyrir ofan Nýjafoss, og hin við gömlu útrásina vestan megin, fyrir ofan Leynifoss. Með þessum breytingum myndi Nýifoss, foss sem myndaðist í jökulhlaupi á síðustu öld, þorna upp. Áður en umrædd jökulhlaup áttu sér stað var Hagavatn mun stærra. Þetta kemur fram í frétt Bændablaðsins.

Þar segir einnig að Hagavatn liggi við suðurrætur Langjökuls og renni út úr því um Nýifoss niður í Farið, vatnsfarveg milli Jarlhetta og Einfells að austan og Brekknafjalla að vestan. Ferðafélag Íslands rekur gönguskála á svæðinu og samkvæmt áætlunum mun stöðvarhús virkjunarinnar og frárennslisskurður verða í um eins kílómetra fjarlægð frá skálanum. Til að komast að framkvæmdasvæðinu þyrfti að leggja sjö kílómetra aðkomuveg frá Skjaldbreiðarvegi.

Umhverfismatsskýrslan fyrir framkvæmdina var kynnt fyrr á árinu, en Skipulagsstofnun hefur ekki enn lokið við gerð álits síns. Þar sem fyrirhuguð virkjun er undir 10 MW að afli fellur hún utan Rammaáætlunar. Landvernd hefur þó bent á í umsögn sinni að nánast sams konar virkjun, en með 20 MW afli, sé nú þegar í biðflokki Rammaáætlunar vegna mögulegra neikvæðra umhverfisáhrifa.

Í dag er Hagavatn fjóra til fimm ferkílómetra að flatarmáli, en verði virkjunin að veruleika myndi vatnið ná 17 ferkílómetrum í lægstu stöðu og allt að 23 ferkílómetrum í hæstu stöðu. Gert er ráð fyrir að hæð vatnsborðs sveiflist um allt að fimm metra, að því er segir í Bændablaðinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Eftirlýstur maður ennþá ófundinn
Innlent

Eftirlýstur maður ennþá ófundinn

Þorgerður heldur til Bandaríkjanna
Pólitík

Þorgerður heldur til Bandaríkjanna

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein
Heimur

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein

Hleðslutæki fyrir lyftara skaðvaldurinn
Innlent

Hleðslutæki fyrir lyftara skaðvaldurinn

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum
Innlent

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram
Heimur

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis
Innlent

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml
Myndband
Heimur

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml

Sindri og Særún starfa saman
Innlent

Sindri og Særún starfa saman

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots
Myndband
Innlent

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots

Landið

Tafir eftir árekstur flutningabíla á Fjarðarheiði
Landið

Tafir eftir árekstur flutningabíla á Fjarðarheiði

Varað við versnandi færð
Eigendur náttúruperlu sakaðir um peningaplokk og metnaðarleysi
Landið

Eigendur náttúruperlu sakaðir um peningaplokk og metnaðarleysi

Sérfræðilæknir fær ekki vinnu á Íslandi
Landið

Sérfræðilæknir fær ekki vinnu á Íslandi

Björgunarsveit þurfti að bjarga þingmanni
Landið

Björgunarsveit þurfti að bjarga þingmanni

Kona ákærð fyrir náttúruspjöll
Landið

Kona ákærð fyrir náttúruspjöll

„Stærstu pólitísku svik aldarinnar“
Landið

„Stærstu pólitísku svik aldarinnar“

Loka auglýsingu