
Össur Skarphéðinsson fyrrverandi ráðherra og ritstjóri spyr hvort ekki þurfi að rannsaka þátt Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins þegar kemur að máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur sem sagði af sér ráðherraembætti í vikunni.
Össur segir að „Hrútakofinn á Mogganum og ýmsir þingmenn Sjálfstæðisflokksins ásamt öðrum hafa velt sér upp úr „lekum“ úr forsætisráðuneytinu og reynt að koma höggi á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Af þingmönnum má nefna Hildi Sverrisdóttur og jafnvel nýkjörinn formann Guðrúnu Hafsteinsdóttur.“
Össur færir í tal það sem hann kallar “ ærandi þögn Áslaugar Örnu, yfirlýsingaglaðasta þingmanns flokksins, sem þó hefur ekki sparað sig um hvers kyns málefni eftir fallið í nýafstöðnu formannskjöri. Nú er hins vegar upplýst að Áslaug Arna vissi af málinu löngu áður en það breikaði í fjölmiðlum. Það setur meintan „leka“ á upplýsingum Ólafar í allt annað og alvarlegra samhengi.“
Hann heldur áfram:
„Grafin inn í frétt RÚV í gærkvöldi er frásögn af því að degi eftir að Ólöf tengdamóðir sendi forsætisráðuneytinu „langan og ítarlegan tölvupóst þar sem hún rakti erindi sitt“ sendi hún líka tölvupóst á Áslaugu Örnu. Var það kanski sami tölvupósturinn?“
Össur bætir því við að „samkvæmt frétt RÚV hafði því fólk í innsta hring Sjálfstæðisflokksins upplýsingar um málið undir höndum löngu áður en það komst til fjölmiðla . RÚV hefir til þessa kosið að fara ekki dýpra í málið. Er það til að vernda heimildarmenn sína?“
Össur segir að lokum að það sé forystu Sjálfstæðisflokksins „til minnkunar að freista þess að nota þetta mál til að sverta mannorð forsætisráðherra. Sérstaklega þegar haft er í huga að skv. RÚV hafði fallin erfðaprinsessa í flokknum upplýsingar um málið. Ætlar RÚV virkilega ekki að ganga eftir því að Áslaug Árna skýri stöðu sína í málinu? Eftir ásakanir úr Sjálfstæðisflokknum um að forsætisráðherra sé ábyrg fyrir lekum af erindi sem henni barst er það skýlaus krafa að Áslaug Arna geri hreint fyrir sínum dyrum. Hvað gerði hún við þær upplýsingar sem henni bárust um málið?“
Komment