1
Fólk

Logi Bergmann snýr aftur

2
Pólitík

16 staðreyndir um mál Ásthildar Lóu

3
Pólitík

Össur dregur Jakob Bjarnar og Stefán E. sundur og saman í háði

4
Heimur

Victoria svaf óvart hjá bróður sínum

5
Fólk

Hrafndís bað um endurnýjun lyfseðils í bundnu máli

6
Heimur

Fjórtán ára sonur hafnarboltastjörnu lést í fjölskyldufríi

7
Heimur

Spánverjar íhuga að krefjast brottreksturs Ísrael úr Eurovision

8
Menning

VÆB-bræður nálgast botninn

9
Innlent

Heimilislausir karlmenn í Reykjavík greindir með berkla

10
Innlent

Forsætisráðuneytið segir Ólöfu aldrei hafa verið lofað trúnaði

Til baka

Össur dregur Jakob Bjarnar og Stefán E. sundur og saman í háði

„Hún hlýtur að hafa smollið einsog hrís á silkimjúkan afturenda siðfræðingsins“

Össur
Össur SkarphéðinssonÖssur kann að koma fyrir sig orði.
Mynd: Facebook

Össur Skarphéðinsson sakar tvo blaðamenn um ellifordóma í nýrri Facebook-færslu.

Líffræðingurinn og fyrrum ráðherrann Össur Skarphéðinsson er ekki par hrifinn af þeim Jakobi Bjarnari Grétarssyni, blaðamanni Vísis og Stefáni E. Einarssyni, blaðamanni og hlaðvarpsstjórnanda á mbl.is og sakar þá um mikla ellifordóma.

„Ellifordómar fréttamanna

Tveir fréttamenn skera sig úr fyrir “blatant” ellifordóma. Annar er Jakob Bjarnar, fallegur og góður piltur, sem ég eyddi einu sinni nótt með í Búðahrauni.

Þegar ég set fram skoðun á frammistöðu stéttar hans varðandi “lekamál” úr forsætisráðuneyti sem honum er andstæð, þá er mér “farið að förlast” (Lesist: Össur er orðinn svo gamall að hann er hættur að geta hugsað).“ Þannig hefst færsla Össurar en hann segir Jakob einnig setja þá Ögmund Jónasson, fyrrverandi ráðherra og Hauk Arnþórsson stjórnsýslufræðing, undir sama hatt:

„Í sömu kategóríu setur hann líka Ögmund Jónasson og Hauk stjórnsýslufræðing Arnþórsson. Jakobi Bjarnar líkar ekki við skoðanir okkar og varar lesendur sína við því að taka mark á þeim því við séum orðnir “stútungskallar”.“

Þá segir Össur að Stefán E. sé á sama róli og uppnefnir vinnustað hans sem „hrútakofa“.

„Á sama róli er siðfræðingur “hrútakofa” Moggans, sem jafnframt er pólitískur ritstjóri frétta á Mogganum. Sá drengur – fallegur einsog Jakob Bjarnar - náði ekki upp í nef sér af bræði vegna þess að Ólafur Þ. Harðarsson, einn virtasti álitsgjafi þjóðarinnar, hafði aðrar skoðanir en “hrútakofinn” á því hvaða áhrif uppnámið kringum barnamálaráðherrann hefði á stöðu ríkisstjórnarinnar. Stefán Einar í rökþroti afgreiddi Ólaf sem “elliæran”.“

Tekur Össur fram að þetta sé sérstaklega eftirtektarvert í ljósi þess að ritstjóri Morgunblaðsins, Davíð Oddsson, hafi sama sólarhring verið búinn að skrifa „snaggaralega ádrepu um lekamálin“ sem hann segir að hljóta hafa „smollið einsog hrís á silkimjúkan afturenda siðfræðingsins“:

„Það er reyndar sérstaklega merkilegt í ljósi þess að Davíð Oddsson, ritstjóri Moggans, var á sama sólarhring búinn að skrifa snaggaralega ádrepu um lekamálin. Hún hlýtur að hafa smollið einsog hrís á silkimjúkan afturenda siðfræðingsins, sem að vísu kann enn að vera öróttur eftir rassskellingu Kristrúnar Frostadóttur fyrir kosningar. En vitaskuld þarf hinn pólitíski eltihrellir ekki að taka mark á Davíð Oddsyni, aðalritstjóra.“

Ástæðan fyrir því að Stefán þurfi ekki að taka mark á yfirmanni sínum, segir Össur vera þá staðreynd að Davíð sé löngur orðinn elliær.

„Davíð er nefnilega eldri en Ólafur Þ. Harðarson. Þarafleiðandi er hann ómarktækur enda skv. skilgreiningu siðfræðingsins fyrir löngu orðinn “elliær.”

Punctum saliens er þessi: Mega menn ekki eldast og taka þátt í samfélaginu án þess að vera atyrtir fyrir aldur sinn þrátt fyrir að vera miklu sprækari og frískari í andanum - örugglega lífsglaðari - en þessir tveir "kornungu" herramenn?“


Komment


Fiskeldi
Landið

MAST fer fram á lögreglurannsókn á fiskeldisfyrirtæki

Daði_Már_Kristófersson_731 (1) (1)
Innlent

„Að hækka veiðigjöld er til verndar lýðræðinu“

Össur Skarphéðinsson
Pólitík

Össur segir að Guðrún Hafsteins þurfi að spara sig

umferð reykjavík Hringbraut
Innlent

Naglar ennþá vinsælir í Reykjavík

Brett og Miller Gardner
Heimur

Sonur hafnarboltastjörnunnar kafnaði sennilega í svefni

Reykjavík – Mynd: Reykjavíkurborg
Innlent

Ríkislögreglustjóri fékk ábendingu um yfirvofandi árás á Reykjavík í fyrra

AFP__20250303__2202947347__v2__HighRes__97thAnnualOscarsPressRoom
Heimur

Óskarsverðlaunahafi barinn af landnemum og síðan rænt af hernum

Kennari í Indiana
Heimur

Kennari ákærður fyrir kynferðislega misnotkun á nokkrum drengjum