
Össur Skarphéðinsson heldur áfram að skjóta á Morgunblað Davíðs Oddssonar í nýjust Facebook-færslu sinni.
Líffræðingurinn og fyrrverandi ráðherrann Össur Skarphéðinsson er með betri pennum samfélagsmiðlanna, að margra mati. Í nýjustu Facebook-færslu sinni hæðist hann að Morgunblaðinu sem hann segir dást að Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra.
„Aðdáun Moggans á „K-Frost“
Það eru fleiri en ég sem dást að pólitískri fimi Kristrúnar Frostadóttur.
Í yfirferð Mogga um afrek Spursmála vikunnar líkir "hrútakofinn" Kristrúnu við einn fremsta markvörð í handboltasögu þjóðarinnar. Aðdáunin er svo fölskvalaus að maður næstum viknar:
„K-Frost gengur í allar stöður og tekur hverja markvörsluna á fætur annarri, Björgvin Páll Gústafsson hvað?“.“ Þannig hefst færsla Össurar. Seinni partur færslunnar er löðrandi í kaldhæðni:
„Þetta rifjar upp þegar „K-Frost“ tók siðfræðinginn í kennslustund í frægum Spursmálaþætti fyrir kosningar. Kanski má berja „hrúta“ til ásta.
Kanski er það einfaldlega runnið upp fyrir testosteróndrengjunum að Kristrún virðist einfaldlega besti forsætisráðherrann á þessari öld - að minnsta kosti til þessa. Allir þroskast - líka "hrútakofinn!“
Komment