
Í gær voru kynnt úrslit rektorskjörs Háskóla Íslands en kosið var milli Silju Báru Ómarsdóttur, prófessors við Stjórnmálafræðideild, og Magnúsar Karls Magnússonar, prófessors við Læknadeild. Silja vann þá kosningu og hlaut 50,7% atkvæða en Magnús 47,6%. Í fyrri umferð kosninga hafði Magnús fengið 33,6% atkvæða en Silja Bára 29,3%.
Athygli vekur að fleiri nemendur HÍ kusu Magnús heldur Silju en atkvæðavægi milli starfsfólks og nemenda er 70% móti 30%. Heimildir Mannlífs herma að nokkrir kennarar við Háskóla Íslands hafi hringt í nemendur skólans og hvatt á þá að kjósa Magnús. Sömu heimildir herma að óánægja ríki innan skólans með það og þyki sumum kennurum óviðeigandi að samkennarar þeirra beiti sér með þessum hætti. Telja þeir að þarna sé á ferðinni hagsmunaárekstur.
Þá hefur Mannlíf undir höndunum tölvupóst frá læknadeild skólans þar sem nemendur eru hvattir til að kjósa í rektorskjörinu en er Magnús eini frambjóðandinn sem er nefndur á nafn í tölvupóstinum. Hann er fyrrverandi forseti deildarinnar.
Í samtali við Mannlíf kannaðist Magnús ekki við að kennarar hafi hringt í sína eigin nemendur fyrir hans hönd í rektorskjörinu, enda telji hann það ekki rétt. „Einnig vil ég taka fram að ég tel óeðlilegt að hringja í nemendur sína til að hvetja þá til að kjósa ákveðinn frambjóðanda. Ég vil einnig taka fram að umræddur tölvupóstur sem var sendur var ekki sendur með minni vitneskju eða mínu samþykki og ég hefði aldrei lagt slíkt til.“
Samkvæmt heimildum Mannlífs var gríðarlega mikið um úthringingar til nemenda Háskólans í kringum kosningarnar.
Silja Bára sagði í samtali við Mannlíf að kennarar hafi ekki hringt í nemendur fyrir hennar hönd, að minnsta kosti ekki með hennar vitund eða samþykki.
Komment