1
Fólk

Spyrnti sér upp frá botninum og féll fyrir Kára

2
Heimur

Myndband af alvarlegu einelti á Kanarí vekur hneykslun

3
Fólk

„Hann er bara heitur!“

4
Heimur

Þrefaldur morðingi valdi óvenjulega aftöku

5
Heimur

Dularfullur Epstein-póstur vekur spurningar í Bandaríkjunum

6
Heimur

Ungur áhrifavaldur lést eftir metanóleitrun í afmælisveislunni sinni

7
Innlent

Myndaði ferðalanga klífa stuðlaberg

8
Innlent

Tillaga um úrbætur á Hamrastekk felld þrátt fyrir slys

9
Heimur

Trump og Greene í opinberu hjaðningavígi yfir Epstein-skjölunum

10
Fólk

Eva hrundi og þurfti að endurbyggja líf sitt

Til baka

Reynir að stöðva varasamt fiskeldi í Eyjafirði

„Lífríki fjarðarins er í húfi,” segir Harpa Barkardóttir.

Eyjafjörður
EyjafjörðurHafrannsóknarstofnun varar við sjókvíaeldi í firðinum.
Mynd: Upplifðu Norðurland - Opinber ferðavefur um Norðurland.

Harpa Barkardóttir, sem situr í stjórn SUNN – Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, segir að stöðva verði áætlanir um sjókvía­eldi í Eyja­firði.

Eyjafjörður sker sig inn í mitt Norðurlandið og er einn af lengstu fjörðum Íslands. Eyjafjörður er langur og mjór, alls um 60 kílómetra frá mynni að botni og mesta breidd hans er 25 kílómetrar á milli Sigluness og Gjögurtáar í mynni fjarðarins. Yfirleitt er fjörðurinn á bilinu 6 til 10 kílómetra breiður og tveir minni firðir ganga út úr Eyjafirði vestan megin, Ólafsfjörður og Héðinsfjörður.

Hörpu er umhugað um náttúruvernd og ritaði hún grein um áformin. Þar kemur fram að Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, SUNN, biðli til stjórnvalda að gera Eyjafjörð að friðunarsvæði fyrir sjókvíaeldi.

„Það eru blikur á lofti” segir Harpa og bætir því við að í farvatninu séu áform Kleifa ehf. á Ólafsfirði um stórfellt laxeldi í Eyjafirði og á Tröllaskaga:

„Á ráðstefnu Hringborðs hafs og eldis og Arion banka í byrjun júní á þessu ári lét atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, í veðri vaka að Hafrannsóknarstofnun skyldi hefja vinnu við burðarþolsmat fyrir fiskeldi í sjókvíum í Eyjafirði. Fyrir 5 árum var í burðarliðnum ámóta verkefni, 20.000 tonna framleiðsla á laxi í sjókvíum í Eyjafirði.”

Harpa ljær máls á því að á þeim tíma hafi bæjarstjórn Akureyrar samþykkt að leggja til við þáverandi ráðherra atvinnuvega og nýsköpunar, Kristján Þór Júlíusson, að Eyjafjörður yrði friðaður fyrir fiskeldi í sjókvíum:

„Fleiri sveitarfélög við fjörðinn tóku í sama streng, afstaðan var nokkuð afdráttarlaus. Í kjölfarið óskaði ráðherra eftir umsögn Hafrannsóknarstofnunar um hvort stofnunin teldi að takmarka skyldi eða banna fiskeldi eða ákveðnar eldisaðferðir í Eyjafirði. Skemst er frá því að segja að í svari stofnunarinnar við erindi ráðuneytis stendur meðal annars: „Hafrannsóknarstofnun telur tifefni til þess að banna fiskeldi í sjókvíum í Eyjafirði. Ástæður þess eru staða villtra stofna laxfiska, þá sérstaklega bleikju og hugsanleg neikvæð áhrif á lífríki fjarðarins.” Við hljótum að geta gengið út frá því að þessi afdráttarlausa niðurstaða Hafrannsóknarstofnunar standi nú fimm árum síðar.”

Harpa færir í tal að í nýlegu lögfræðiáliti um stöðu sveitarfélaga með tilliti til burðarþolsmats vegna fiskeldis segir að löggjafinn hafi ekki tryggt sveitarfélögum næga aðkomu að framkvæmd laga um fiskeldi.

„Frumskylda sveitarfélaga er að gæta hagsmuna íbúa sinna og starfræksla sjókvíaeldis af þeirri stærðargráðu sem um ræðir hefur mikil áhrif á hagsmuni íbúa alls staðar í Eyjafirði, í dag og um ókomna tíð. Lífríki fjarðarins er í húfi.”

Hún segir einnig að „virkasta úrræði sveitarfélaga er að hafa áhrif á umræðuna áður en ráðherra tekur ákvörðun um burðarþolsmat. Tíminn er núna. Þótt ráðherra sé ekki skylt að leita álits sveitarfélaga lögum samkvæmt skulum við treysta því að hann gangi málefnalega til borðs og leiti eftir og taki tillit til þess sem hlutaðeigandi sveitarfélög og íbúar þeirra hafa um málið að segja.”

Harpa er á því að til þess að fiskeldi eigi blómlega framtíð þurfi að vanda það hvernig áframhaldandi uppbygging muni eiga sér stað.

„Það er hægt að skapa sátt milli öflugrar matvælaframleiðslu og verndunar á dýrmætum vistkerfum. Sú sátt næst með nútímalegum lausnum, en ekki með tugþúsunda tonna framleiðslu í opnum sjókvíum í Eyjafirði. Lærdómurinn af átökunum á Seyðisfirði þarf að vera okkur víti til varnaðar. Þar hafa íbúar mátt horfa upp á að áform um sjókvíaeldi eru keyrð áfram þvert á yfirlýstan vilja mikils meirihluta íbúa.

Hún segir að lokum að „kerfið virðist hafa tekið völdin. Hver stofnunin bendir á aðra og ábyrgðin týnist á milli stjórnsýslustiga á meðan vilji heimamanna er virtur að vettugi. Slíka atburðarás verðum við að stöðva í fæðingu hér í Eyjafirði. Tökum höndum saman, stöndum vörð um fjörðinn okkar.”

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Færanlegur hjólabrettagarður veitir börnum á Gaza sálrænt skjól
Heimur

Færanlegur hjólabrettagarður veitir börnum á Gaza sálrænt skjól

„Jafnvel á meðan stríðinu stóð hélt ég áfram að fara á bretti.“
Auður sendir frá sér plötu sem varð til á 336 klukkustundum
Menning

Auður sendir frá sér plötu sem varð til á 336 klukkustundum

Eva hrundi og þurfti að endurbyggja líf sitt
Viðtal
Fólk

Eva hrundi og þurfti að endurbyggja líf sitt

Trump og Greene í opinberu hjaðningavígi yfir Epstein-skjölunum
Heimur

Trump og Greene í opinberu hjaðningavígi yfir Epstein-skjölunum

Ungur áhrifavaldur lést eftir metanóleitrun í afmælisveislunni sinni
Heimur

Ungur áhrifavaldur lést eftir metanóleitrun í afmælisveislunni sinni

Myndband af alvarlegu einelti á Kanarí vekur hneykslun
Heimur

Myndband af alvarlegu einelti á Kanarí vekur hneykslun

Sextán ára ökumaður stöðvaður í Kópavogi
Innlent

Sextán ára ökumaður stöðvaður í Kópavogi

„Hann er bara heitur!“
Viðtal
Fólk

„Hann er bara heitur!“

Líbanon kvartar undan Ísrael til SÞ vegna landamæramúrs
Heimur

Líbanon kvartar undan Ísrael til SÞ vegna landamæramúrs

Myndaði ferðalanga klífa stuðlaberg
Myndband
Innlent

Myndaði ferðalanga klífa stuðlaberg

Tillaga um úrbætur á Hamrastekk felld þrátt fyrir slys
Innlent

Tillaga um úrbætur á Hamrastekk felld þrátt fyrir slys

Novasvellið rís á Ingólfstorgi
Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ingólfstorgi

Spyrnti sér upp frá botninum og féll fyrir Kára
Einkaviðtal
Fólk

Spyrnti sér upp frá botninum og féll fyrir Kára

Landið

Austfirðingar spenna síst bílbelti samkvæmt nýrri könnun
Landið

Austfirðingar spenna síst bílbelti samkvæmt nýrri könnun

Minningardagur um þá sem látist hafa í umferðinni haldinn í dag um allt land
Selfyssingur sagður hafa stjórnað skipi skakkur
Landið

Selfyssingur sagður hafa stjórnað skipi skakkur

Kom að bílaleigubíl á sumardekkjum á hliðinni í Námaskarði
Myndband
Landið

Kom að bílaleigubíl á sumardekkjum á hliðinni í Námaskarði

Íslenskur landi fær gull í Las Vegas
Landið

Íslenskur landi fær gull í Las Vegas

„Hrafnarnir flúðu af hólmi en ég sá blóðbletti í snjónum“
Myndband
Landið

„Hrafnarnir flúðu af hólmi en ég sá blóðbletti í snjónum“

Dagsektir felldar niður ef olíumengun verður hreinsuð á Eskifirði
Landið

Dagsektir felldar niður ef olíumengun verður hreinsuð á Eskifirði

Loka auglýsingu