
Áhorfendur verða ekki leyfðir á leiki Íslands og Ísrael í undankeppni HM í handbolta kvenna en leikirnir fara fram þann 9. og 10. apríl. Kemur þetta fram í tilkynningu frá HSÍ fyrr í dag.
„Vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem er fyrir botni Miðjarðarhafs gerði greiningarsvið ríkislögreglustjóra áhættugreiningu í tengslum við leikina. Ríkislögreglustjóri ráðleggur Handknattleikssambandi Íslands að halda fyrirhugaða landsleiki við Ísrael fyrir luktum dyrum og án þess að auglýsa þá. Stjórn HSÍ hefur ákveðið að fara að þessum ráðum ríkislögreglustjóra enda hefur HSÍ ekki forsendur til að ganga gegn þeirri greiningarvinnu sem unnin hefur verið af embættinu.
Það eru mikil vonbrigði að ekki sé hægt að leika þessa leiki með áhorfendum sem eru mikilvægur þáttur í þeim árangri sem stelpurnar hafa náð,“ segir í tilkynningunni.
Árið 2023 skrifaði HSÍ undir samstarfssamning við fjártæknifyrirtækið Rapyd en sá samningur hefur verið harðlega gagnrýndur eftir Arik Shtilman, forstjóri fyrirtækisins, lýsti því yfir að allar aðgerðir Ísrael á Gaza væru réttlætanlegar.
Komment