
Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út skýrslu um hættumat vegna hryðjuverkaógnar á Íslandi fyrir árið 2025 en greint er frá þessu í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.
Í henni er sagt frá að greiningardeild ríkislögreglustjóra vinni árlega stefnumiðað mat á hryðjuverkaógn á Íslandi. Með matinu sé horft til þróunar mála bæði hérlendis og erlendis og spáð í líklega framtíðarþróun. Samkvæmt skýrslunni er hættustig vegna hryðjuverkaógnar á Íslandi 2025 helst óbreytt frá því í fyrra, á þriðja stigi af fimm en það merkir aukna ógn.
„Í skýrslunni er farið ítarlega yfir þær hættur sem horft var til við gerð matsins. Er það mat greiningardeildar að ógnin stafi fyrst og fremst frá einstaklingum sem starfa einir eða í litlum hópum, oft undir áhrifum ofbeldisfulls áróðurs frá hægri öfgahreyfingum,“ segir í tilkynningunni
„Jafnframt er gerð grein fyrir þeim þáttum sem geta dregið úr hryðjuverkaógn á Íslandi. Sem dæmi eru engar vísbendingar um að hryðjuverkasamtök séu starfandi á Íslandi. Þá eru ekki vísbendingar um að íslenskir hryðjuverkahópar séu starfræktir erlendis.
Skýrslan byggir á upplýsingum frá lögregluliðum landsins, gagnagrunnum lögreglu, samstarfsaðilum innanlands og erlendis, auk opinna heimilda. Unnið var með gögn sem aflað var fyrir 31. desember 2024.“
Skýrslu Greiningardeildar ríkislögreglustjóra má lesa í heild sinni hér
Komment