
Yfirvöld í Íran hafa krafið frönsk yfirvöld um útskýringu á handtöku íranskra konu í Frakklandi á meðan spenna á milli ríkjanna eykst.
Franska vikublaðið Le Point greindi frá því að konan væri Mahdieh Esfandiari, 35 ára gömul og hafi búið í Lyon í átta ár. Fjölskylda hennar, sem hafði áhyggjur eftir að hafa misst samband við hana, lét yfirvöld í Íran vita í síðasta mánuði, sem þá höfðu samband við frönsk yfirvöld, að sögn Le Point. Fjölskyldan hefur þó enn ekki fengið svör.
„Við vonum að franska ríkisstjórnin veiti aðgang að þessu máli eins fljótt og auðið er og geri grein fyrir ástæðum handtökunnar,“ sagði Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins.
Írönsk yfirvöld hefðu „verið í sambandi við franska sendiráðið í Teheran undanfarið,“ sagði Baqaei. Franskir diplómatar sögðu írönsk yfirvöld hafa verið upplýst um stöðu ríkisborgara síns, en gátu ekki tjáð sig frekar þar sem málið heyrði undir innanríkis- og dómsmálaráðuneytin.
Hvorki innanríkis- né dómsmálaráðuneytið hafa svarað fyrirspurnum AFP um málið.
Mikil spenna hefur ríkt milli ríkjanna undanfarin ár þar sem Íran hefur handtekið fólk sem hefur undir höndunum tvöfalt ríkisfang en Íran viðurkennir ekki slíkt.
Vestræn ríki, mannréttindasamtök og fjölskyldur hinna handteknu hafa sakað Íran um „gísladiplómatíu“, ásökun sem íranska lýðveldið hafnar.
Frönsku ríkisborgararnir Cécile Kohler og félagi hennar Jacques Paris, sem voru handtekin í ferðalagi árið 2022, eru sökuð um njósnir af írönskum yfirvöldum, en fjölskyldur þeirra hafna þeim ásökunum. Í mars var Frakkinn Olivier Grondeau, sem hafði verið í haldi í Íran frá október 2022, látinn laus.
Komment