Jón Atli Benediktsson, fráfarandi rektor Háskóla Íslands, sendir þakkir og góðar kveðjur eftir tíð sína sem rektor og þegar hann lítur til baka yfir síðustu tíu ár í starfi sínu sem rektor Háskóla Íslands fyllist hann „djúpu þakklæti fyrir það mikla traust sem mér hefur verið sýnt en líka stolti yfir því sem hefur áunnist.“

Hann segir það „hafa verið einstök forréttindi að leiða þetta öfluga háskólasamfélag í samstarfi við starfsfólk og nemendur sem hafa styrkt stöðu Háskólans sem leiðandi vísinda- og menntasamfélags, ekki bara á Íslandi heldur einnig á alþjóðavísu“ og bætir því við að „í sameiningu höfum við mótað og fylgt stefnu í þágu þekkingar, nýsköpunar og sjálfbærni. Við höfum eflt kennslu og rannsóknir, þróað nýjar námsleiðir í takt við kröfur atvinnulífs og samfélags auk þess að innleiða stafræna kennsluhætti sem miða að auknu aðgengi, gæðum og sveigjanleika í námi.“

Jón Atli segir að þannig hafi verið stutt við nýsköpun og frumkvöðlastarf og stuðlað að frekari framþróun íslensks atvinnulífs“ og þá höfum við „bætt aðstöðu og umbylt Sögu hér á háskólasvæðinu sem verður miðstöð menntavísinda auk þess að hýsa margvíslega aðra starfsemi. Einnig höfum við tekið stór framfaraskref í upplýsingatækni og miðlun í þágu kennslu og rannsókna.“

Hann telur að rannsóknastarf Háskólans hafi „aldrei verið blómlegra enda teflir HÍ fram öflugu vísindafólki sem leggur sitt af mörkum til lausnar á brýnum áskorunum, ekki bara hér heima heldur líka um allan heim“ og segir hann ennfremur að „við höfum lagt áherslu á jafnt aðgengi allra að námi“ og einnig unnið eftir grunngildum um „akademískt frelsi, jafnrétti og fagmennsku.“
Undanfarin ár hafa sýnt fram á hversu mikilvægt það er að standa vörð um frelsi til rannsókna og leitina að sannleikanum segir Jón Atli og vill meina að Þetta séu „hornsteinar háskólastarfsins og allrar lýðræðislegrar umræðu og gleymum ekki að standa vörð um þessi grunngildi nú þegar blikur eru á lofti víða um heim.“

Hann vill að lokum „þakka öllum fyrir seiglu, samheldni og óeigingjarnt starf, ekki síst á tímum þegar heimsfaraldur gekk yfir sem ógnaði ekki bara öllu starfi hér heldur líka lýðheilsu heimsbyggðarinnar allrar. Þá kom skýrt í ljós hversu mikils virði það er að stunda rannsóknir sem vörðuðu leiðina út úr þessari vá.“

Jón Atli sendir að lokum nýjum rektor, Silju Báru R. Ómarsdóttur, góða kveðju með ósk um „velgengni í starfi og ég hvet ykkur öll til að leggjast á árarnar með henni við að gera góðan háskóla betri.“
Komment