
Reykjanesskaginn er á iði í yfirstandandi jarðhræringum.
Skjálftavirkni dreifst til norðausturs og suðvesturs frá gossvæðinu skammt norðan Grindavíkur. Stór skjálfti reið yfir skömmu fyrir klukkan 17 sem fannst á höfuðborgarsvæðinu. Skjálftinn mældist 4,3 að stærð og kom annar 4,7 að stærð á 2,6 og 3,7 kílómetra dýpi. Staðsetning skjálftanna var um tveir kílómetrar frá Reykjanestá.
Skjálftavirknin hefur færst norður fyrir Keili og virðist norðausturendi kvikugangsins vera nær Hafnarfirði heldur en Grindavík, eða um 11 kílómetrum frá byggð í Hafnarfirði.
Veðurstofan segir í tilkynningu að dregið hafi úr gosinu. „Hinsvegar heldur jarðskjálftavirkni áfram. Dregið hefur úr skjálftavirkni við suðurhluta kvikugangsins, nærri Grindavík, en virknin á norðurenda kvikugangsins heldur áfram af svipuðu krafti og hefur færst enn norðar síðustu klukkustundir. Skjálftavirknin er komin tæpa 9 km norðar en nyrsta gossprungan í þessari goshrinu sem myndaðist í ágúst 2024. Stærstu skjálftarnir hafa verið um 3 að stærð og finnast greinilega í Vogum sem er um 7 km NV við virknina.“
Eftir að tilkynningin var send út riðu yfir stórir skjálftar við Reykjanestá.
Ekki er útilokað að eldgos komi upp á öðrum stað.
„Aflögunarmælingar sýna að kvika sé enn að flæða frá Svartsengi yfir í kvikuganginn á Sundhnúksgígaröðinni. Jarðskjálftavirknin bendir til þess að kvikan sé að færast til norðausturs. Skjálftavirknin er á um 4-6 km dýpi og unnið er að því að greina aflögunargögn á því svæði. Á meðan jarðskjálftavirkni er enn töluverð og aflögun mælist ennþá þarf að gera ráð fyrir þeim möguleika að kvika komist aftur upp á yfirborðið á Sundhnúksgígaröðinni eða nærri því svæði sem skjálftavirkni er mest,“ segir Veðurstofan.

Komment