Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Sveitarfélögin á svæðinu leggjast gegn flokkun Hamarsvirkjunar í verndarflokk

Menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra kynnir, sem stað­geng­ill umhverfis-, orku-, og lofts­lags­ráð­herra, til­lögu í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda um flokkun Ham­ar­s­virkj­unar í bið­flokk verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætl­unar

Verkefnastjórnin leggur til að Bolaalda verði flokkuð í orkunýtingarflokk áætlunarinnar
Verk­efna­stjórnin leggur til að Bolaalda verði flokkuð í orku­nýt­ing­ar­flokk áætl­un­ar­innar Ekki er lögð til breyt­ing á til­lögum verk­efn­is­stjórnar á flokkun hinna virkj­ana­kost­anna Mynd: Stjórnarráðið

Menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra kynnir, sem stað­geng­ill umhverfis-, orku-, og lofts­lags­ráð­herra, til­lögu í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda um flokkun Ham­ar­s­virkj­unar í bið­flokk verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætl­unar.

Verk­efn­is­stjórn verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætl­unar skil­aði þann 10. mars síð­ast­lið­inn umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra til­lögu að flokkun fimm nýrra virkj­un­ar­kosta en um er að ræða virkj­un­ar­kost­ina Bolaöldu, Tröll­ár­virkjun, Hvann­eyr­ar­dals­virkjun, Skúfna­vatna­virkjun og Ham­ar­s­virkjun.

Það kemur fram að verk­efna­stjórnin leggur til að Bolaalda, ásamt annað hvort Skúfna­vatna­virkjun eða Tröll­ár­virkjun, verði flokkuð í orku­nýt­ing­ar­flokk áætl­un­ar­innar; seinni virkj­ana­kost­irnir tveir eru innan sama vatna­sviðs.

Þá er á áætlun að Hvann­eyr­ar­dals­virkjun verði flokkuð í bið­flokk áætl­un­ar­innar - og einnig að Ham­ar­s­virkjun verði flokkuð í vernd­ar­flokk áætl­un­ar­innar.

Í mars síð­ast­liðnum ákvað Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra að víkja sæti sem umhverfis-, orku-, og lofts­lags­ráð­herra við með­ferð máls­ins vegna tengsla sinna við einn af fram­kvæmd­ar­að­ilum og var Logi Ein­ars­syni, menn­ingar-, nýsköp­unar og háskóla­ráð­herra, skip­aður ráð­herra í mál­inu.

Hefur settur umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra ákveðið að setja breyt­ingu á til­lögu verk­efn­is­stjórnar í sam­ráð­ferli þess efnis að Ham­ar­s­virkjun verði flokkuð í bið­flokk áætl­un­ar­innar en ekki er lögð til breyt­ing á til­lögum verk­efn­is­stjórnar á flokkun hinna virkj­ana­kost­anna.

Í lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun er kveðið á um að ráð­herra taki til­lögu verk­efn­is­stjórnar til skoð­unar, en það er svo verk­efn­is­stjórnin sem fer með ráð­gef­andi hlut­verk gagn­vart ráð­herra.

Fari svo að ráð­herra leggi hins vegar til breyt­ingar á til­lögu verk­efn­is­stjórnar þá skal leita umsagna og kynna breyt­ing­arnar almenn­ingi áður en til­lagan er lögð fram á Alþingi - sem fer með end­an­legt ákvörð­un­ar­vald um flokkun virkj­un­ar­kosta.

Af umsögnum umsagn­ar­að­ila við til­lögu verk­efn­is­stjórnar má glöggt sjá að sveit­ar­fé­lögin á svæð­inu leggj­ast gegn flokkun Ham­ar­s­virkj­unar í vernd­ar­flokk. Þau vísa meðal ann­ars til þess að raf­orku­kerfið á Aust­ur­landi sé veik­burða; skortur sé á fram­boði á raf­orku á svæð­inu og slíkt hamli atvinnu­upp­bygg­ingu. Þá hefur efna­hags­legur ávinn­ingur virkj­un­ar­kosts­ins verið met­inn nokkuð jákvæður. Einnig hafa fram­kvæmdir við stór og hag­kvæm verk­efni taf­ist all­veru­lega og ríkir núna alger óvissa um marga virkj­un­ar­kosti vegna jarð­hrær­inga víða á Íslandi.

Hefur því í ljósi þessa verið talið afar brýnt að for­gangs­raða skoðun sem og frek­ari rann­sóknum á virkj­unum sem stað­settar eru utan helstu umbrota- og ham­fara­svæða lands­ins.

Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, Jóhann Páll Jóhanns­son, hefur í hyggju að leggja fram frum­varp með breyt­ingum á lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun, og er mark­miðið það að auka skil­virkni sem og að bæta máls­með­ferð.

Jafn­framt þessu hefur Jóhann Páll sett í sam­ráðs­gátt drög að frum­varpi til breyt­inga á raf­orku­lögum. Þar er kveðið á um að stjórn­völd hér á landi skuli á fjög­urra ára fresti leggja fram heild­stæða stefnu um öflun raf­orku og segir ráð­herra að „í þeirri stefnu verða skil­greind tölu­leg mark­mið um aukna raf­orku­fram­leiðslu, sem verða höfð til hlið­sjónar við gerð verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætl­unar hverju sinni“ og gerir Jóhann Páll ráð fyrir því að „til­laga til þings­á­lykt­unar um breyt­ingu á verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun verði lögð fram á Alþingi næsta haust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu