1
Peningar

Fjórtán í Mosfellsbæ sem synda í seðlum

2
Innlent

Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni

3
Heimur

Níu líffæri fjarlægð eftir ranga greiningu

4
Fólk

Óska eftir tilboði í eitt eftirsóttasta hús Garðabæjar

5
Innlent

MAST varar við girnilegri súkkulaðiköku

6
Fólk

„Það var ekki til neinn peningur“

7
Heimur

30 manns létust í ruslaslysi

8
Sport

Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns

9
Heimur

Kókaínkennari sviptur starfsréttindum

10
Fólk

Bæjarstjórinn fyrrverandi kominn með nýtt starf

Til baka

Ungir umhverfissinnar krefjast banns við olíuleit á Drekasvæðinu

Segja afstöðu umhverfisráðherra ekki hlutlausa

Jóhann Páll ráðherra
Jóhann Páll JóhannssonRáðherrann segist hvort taka afstöðu með eða á móti olíuleit á Drekasvæðinu
Mynd: Stjórnarráðið

Stjórn Ungra umhverfissinna hvetur Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, til að standa við kosningaloforð sitt og ríkisstjórnarinnar um að banna olíuleit og vinnslu jarðefnaeldsneytis í íslenskri lögsögu.

Í opnu bréfi segir að afstaða ráðherra, sem nýlega sagði að ríkisstjórnin hygðist hvorki ýta undir né banna olíuleit, sé ekki hlutlaus. Hún viðhaldi möguleikum á starfsemi sem gangi gegn loftslagsmarkmiðum Íslands, skuldbindingum samkvæmt Parísarsamkomulaginu og náttúruvernd.

„Loftslagsráðherra á að vera í fararbroddi loftslagsbaráttunnar. Við eigum að standa við skuldbindingar okkar og leiða Ísland inn í framtíðina, ekki gefa kost á iðnaði sem ýtir undir loftslagsbreytingar og grefur undan trúverðugleika landsins á alþjóðavettvangi,“ segir í yfirlýsingunni.

Ungir umhverfissinnar minna á að Alþjóðadómstóllinn (ICJ) hafi nýlega bent á að ríki sem styðji áfram framleiðslu jarðefnaeldsneytis eða leyfi olíuleit geti gerst brotleg við alþjóðalög.

Samtökin krefjast þess að sett verði skýrt og óafturkræft bann við olíuleit, að orkuskipti verði leidd áfram með áherslu á sjálfbæra orku og að Ísland standi við eigin og alþjóðlegar skuldbindingar „án undanbragða“.

Undir ákallið skrifar stjórn Ungra umhverfissinna:

Laura Sólveig Lefort Scheefer, forseti, Snorri Hallgrímsson, varaforseti, Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir, gjaldkeri, Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruverndarfulltrúi, Ida Karólína Harris, loftslagsfulltrúi, Antonia Hamann, hringrásarfulltrúi og Julien Nayet-Pelletier, fræðslufulltrúi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Réðst á mann og ók svo á hann
Innlent

Réðst á mann og ók svo á hann

Breyta opnunartíma Sundhallarinnar
Innlent

Breyta opnunartíma Sundhallarinnar

MAST varar við girnilegri súkkulaðiköku
Innlent

MAST varar við girnilegri súkkulaðiköku

Rjómatertukastarinn mikli er fallinn frá
Heimur

Rjómatertukastarinn mikli er fallinn frá

Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni
Innlent

Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni

Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns
Sport

Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns

Íslensk kvikmynd á meðal þeirra bestu á Norðurlöndum
Menning

Íslensk kvikmynd á meðal þeirra bestu á Norðurlöndum

Kókaínkennari sviptur starfsréttindum
Heimur

Kókaínkennari sviptur starfsréttindum

Borgarbókasafnið fær veglega gjöf frá verðlaunahöfundi
Menning

Borgarbókasafnið fær veglega gjöf frá verðlaunahöfundi

Krafturinn í því að vera loksins séð
Fólk

Krafturinn í því að vera loksins séð

„Það var ekki til neinn peningur“
Fólk

„Það var ekki til neinn peningur“

Innlent

Réðst á mann og ók svo á hann
Innlent

Réðst á mann og ók svo á hann

Reykvíkingur ákærður fyrir skjalafals á Norðurlandi
Innlent

Reykvíkingur ákærður fyrir skjalafals á Norðurlandi

Breyta opnunartíma Sundhallarinnar
Innlent

Breyta opnunartíma Sundhallarinnar

MAST varar við girnilegri súkkulaðiköku
Innlent

MAST varar við girnilegri súkkulaðiköku

Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni
Innlent

Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni

Þrír nýir prestar vígðir
Innlent

Þrír nýir prestar vígðir

Loka auglýsingu