
Það kemur lægð inn á land í dag með skúrum og veðrið mun einkennast af úrkomu í dag sem og á morgun. Á nokkrum stöðum eru líkur á talsverðum dembum og hiti mun verða á bilinu 7 til 16 stig í dag.
Þetta votviðri eða vætutíð mun verða ríkjandi í flestum landshlutum í dag sem og á morgun.
Lægðinni fylgir austan gola eða kaldi um mest allt land.
Rigning eða súld mun verða suðaustanlands, skúrir í öðrum landshlutum og sums staðar eru líkur á talsverðum dembum, jafnvel hellidembum af og til.
Á morgun mun hann snúa í suðlægan vind sem verður yfirleitt fremur hægur og það spáir áframhaldandi skúrum á morgun og annað kvöld er spáð austlægri átt. Þá bætir í úrkomuna og hiti verður áfram svipaður, þetta 7 til 16 stig.
Komment