1
Innlent

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“

2
Innlent

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife

3
Innlent

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots

4
Fólk

Selja glæsilegt einbýli sem þarfnast umhyggju

5
Pólitík

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“

6
Heimur

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum

7
Innlent

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis

8
Innlent

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð

9
Heimur

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein

10
Fólk

Gullfallegt hús á risastórri lóð til sölu

Til baka

Vendipunktur í Golfstraumnum „sennilega skammt undan“

„Hvað getum við gert til að draga úr eða koma í veg fyrir stöðvun AMOC hringrásarinnar?“

Haraldur Sigurðsson
Haraldur SigurðssonPrófessorinn hefur áhyggjur af þróun mála
Mynd: Graduate School of Oceanography

Haraldur Sigurðsson, jarð- og jarðefnafræðingur segir nýjar vísindarannsóknir benda til þess að hringrásin í Norður-Atlantshafi, svonefnd AMOC, sé að nálgast vendipunkt og að afleiðingarnar gætu orðið djúpstæðar fyrir loftslag og lífríki á norðurslóðum.

Í færslu sem Haraldur birti á Facebook segir hann að margir vísindamenn telji að dregið sé úr hringstraumnum, sem flytur gífurlegt magn af hitaorku til norðurs og hefur afgerandi áhrif á veðurfar á norðurhveli jarðar. „Margir telja að nú sé að draga úr straumnum, sem mun valda djúptækum loftslagsbreytingum á norðurslóðum, bæði í hafinu og á landi,“ skrifar hann.

Haraldur bendir á að hringrásinni sé haldið gangandi vegna mismunandi seltu og hita í hafinu, en að enn blasi við stórar spurningar. „(1) Hvenær hættir hringrásin? (2) Hvaða afleiðingar hefur það á loftslag í Norður-Evrópu og Grænlandi? (3) Hvaða áhrif hefur það á lífríki í hafinu og á fiskstofna og afla?“ spyr hann og bætir við fjórðu spurningu: „(4) Hvað getum við gert til að draga úr eða koma í veg fyrir stöðvun AMOC hringrásarinnar?“

Svarið sé augljóst að mati Haraldar: „Að draga úr losun koltvíoxíðs og annarra efna sem valda hnattrænni hlýnun. Sennilega er það því miður tapað mál, ef dæma skal út frá stefnum og atgerðum stórveldanna.“

Hann vísar til nýrra rannsókna Hollendingsins van Westen og félaga (2025) í Utrecht, sem sýni að „vendipúnkturinn í hringrásinni er sennilega skammt undan.“

Haraldur birtir einnig tvær myndir úr rannsóknum sem sýna annars vegar líkön af hitabreytingum í Norður-Atlantshafi ef eða þegar AMOC hringrásin stöðvast, og hins vegar raunmælingar gervihnatta frá 1993 til 2021 sem sýni svipaða þróun

„Myndirnar sýna svipaða þróun, bæði hvað varðar Golfstrauminn og kólnun Norður-Atlantshafsins,“ segir hann og veltir því fyrir sér hvort „Þýðir að AMOC straumurinn sé þegar byrjaður að slaka á?“

Að lokum bendir Haraldur á að hringrásin muni ekki stöðvast á einni nóttu, heldur verði um hægfara breytingar að ræða: „Talið er að AMOC straumurinn muni ekki hverfa í einum hvelli, heldur muni það taka 50 til 100 ár að straumurinn dvínar smátt og smátt.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Eftirlýstur maður ennþá ófundinn
Innlent

Eftirlýstur maður ennþá ófundinn

Þorgerður heldur til Bandaríkjanna
Pólitík

Þorgerður heldur til Bandaríkjanna

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein
Heimur

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein

Hleðslutæki fyrir lyftara skaðvaldurinn
Innlent

Hleðslutæki fyrir lyftara skaðvaldurinn

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum
Innlent

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram
Heimur

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis
Innlent

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml
Myndband
Heimur

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml

Sindri og Særún starfa saman
Innlent

Sindri og Særún starfa saman

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots
Myndband
Innlent

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots

Kona dæmd fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Laugardalnum
Innlent

Kona dæmd fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Laugardalnum

Innlent

Eftirlýstur maður ennþá ófundinn
Innlent

Eftirlýstur maður ennþá ófundinn

Sindri og Særún starfa saman
Innlent

Sindri og Særún starfa saman

Hleðslutæki fyrir lyftara skaðvaldurinn
Innlent

Hleðslutæki fyrir lyftara skaðvaldurinn

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum
Innlent

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis
Innlent

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis

Loka auglýsingu