
Það er mismikill vilji til sameiningar á Vestfjörðum og virðist sem Vesturbyggð og Bolungarvík hugnist ekki að sameinast Ísafjarðarbæ.
Minni sveitarfélögin á Vestfjörðum eru frekar á því að taka undir hugmyndir er Ísafjarðarbær kynnti varðandi víðtækar sameiningar á Vestfjörðum.
Fyrir sex árum - árið 2019 - voru um það bil 80% Bolvíkinga sem svöruðu íbúakönnun mótfallnir sameiningu við önnur sveitarfélög og telur sveitarstjórn að sú afstaða hafi ekki breyst.
Núna í byrjun júní sendi Ísafjarðarbær erindi til allra sveitarfélaga á Vestfjörðum. Þar var óskað eftir afstöðu til sameiningar í því markmiði að sveitarfélög í fjórðungnum verði færri.
Vesturbyggð og Bolungarvík sem telja um það bil eitt þúsund íbúa hafa hafnað boði Ísafjarðarbæjar um sameiningaviðræður.
Vísaði Vesturbyggð til nýlegrar sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps sem er enn í gangi og telur það alveg ljóst að það sé ótímabært að ræða frekari sameiningar eins og staðan sé nú í þessum málum.
Í Bolungarvík benda ráðamenn á íbúakönnun frá árinu 2019. Þar kom fram að um það bil 80% svarenda voru neikvæð varðandi sameiningu við önnur sveitarfélög á svæðinu.
Hins vegar eiga Súðavíkurhreppur, með um 200 íbúa, og Strandabyggð, sem telur um 400 manns, eiga nú þegar í óformlegum sameiningarviðræðum; hafa tekið vel í erindi Ísafjarðarbæjar, en það gerir Reykhólahreppur hins vegar ekki; hann tekur ekki afstöðu en leggur þó til að haldinn verði sameiginlegur fundur með sveitarfélögum á Vestfjörðum.
Þá er vert að geta þess að fámennustu hrepparnir á Vestfjörðum, Kaldrananeshreppur og Árneshreppur á Ströndum, eiga nú þegar í sameiningarviðræðum og er ekki annað vitað en að þær gangi vel.
Kemur fram í fundargerð sveitarstjórnar Árneshrepps að rétt sé að skoða hvað muni koma út úr sameiningarviðræðum við Kaldrananeshrepp; en sveitarstjórn Kaldrananeshrepps hefur lýst yfir vilja til að taka þátt í stærri sameiningarviðræðum.
Komment