Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Vindmyllur munu setja svip sinn á Dalasýslu

Umhverf­is­mats­skýrsla vegna vind­orku­vers að Hróð­nýj­ar­stöðum hefur verið lagt fram

Vindmyllur Landsvirkjunnar
Vind­myllur Lands­virkj­unnar Áætlað er að reisa tugi vind­mylla á kom­andi árum. Mynd: Landsvirkjun

Storm orka ehf. hefur lagt fram skýrslu vegna umhverf­is­mats fyrir 118,8 MW vind­orku­ver að Hróð­nýj­ar­stöðum í Dala­byggð. Öll geta kynnt sér skýrsl­una og veitt umsögn í gegnum Skipu­lags­gátt­ina til 25. ágúst 2025.

Áætlað er að reisa 18 vind­myllur á landi við Hróð­nýj­ar­staði í Dala­byggð, hver með 6,6 MW afl. Eins og er hefur Ísland ekk­ert vind­orku­ver af þess­ari stærð. Einungis tvær vind­myllur eru starf­andi hjá Lands­virkjun sem eru norðan við Búrfell. Hvor vind­myllan um sig hefur 0,9 MW upp­sett afl. Því er ljóst er að verk­efni Stormorka ehf. yrði mun stærra en Íslend­ingar hafa séð hingað til

„Svæði fyr­ir­hug­aðs vind­orku­garðs að Hróðnýjar­stöðum í Dala­byggð ein­kenn­ist af nokkuð flötu landi sem hallar með nokkuð jöfnum og aflíð­andi halla niður að sjó í Hvamms­firði. Nokkuð mikil víðsýni er víða innan svæð­is­ins en lands­lagið er nokkuð fjöl­breytt og má sjá heiðar, strand­lengjur, fjöll og dali. Vind­myll­urnar eru há mann­virki og verða stað­settar Hvamms­fjarð­ar­megin við Lax­ár­dals­heiði og verða því sýnilegar á stóru svæði í Hvamms­firði. Vegna stærðar vind­myll­anna og hreyf­ingar spað­anna mun vind­orku­garð­ur­inn verða nýtt og áber­andi, jafn­vel ríkj­andi kenni­leiti í lands­lag­inu á þessu svæði. Víðast hvar í nágrenni vind­orku­garðs­ins er lítið um gróður eða bygg­ingar sem skyggja á sýn áhorf­and­ans,“ er skrifað í umhverf­is­mats­skýrsl­unni. Helsta gagn­rýnin við vind­orku­ver snýr að sjón­mengun lands­ins en stærð vind­mylla gerir það óhjá­kvæmi­legt að þær hafi áhrif á ásýnd.

Eigendur Storm Orku eru Sigurður Eyberg Jóhann­es­son og Magnús B. Jóhann­es­son, en þeir eru bræður. Magnús komst í frétt­irnar árið 2019 þegar hann vildi kaupa Hell­is­heið­ar­virkjun af sveit­ar­fé­lög­unum Reykja­vík­ur­borg, Akra­nes­kaup­stað og Borg­ar­byggð. Hann var áður fram­kvæmda­stjóri banda­rísks orku­fyr­ir­tækis, America Renewables.

Sjást víða aðÁ kort­inu birt­ist sýni­leiki fyr­ir­hug­aðra vind­mylla. Rauði lit­ur­inn táknar að 18 vind­myllur muni sjást, en græni niður í eina.

Áhrif á fugla­líf er einnig meðal helstu gagn­rýni á aukn­ingu vind­mylla en þær geta verið fuglum lífs­hættu­legar. „Gögn frá GPS sendi­tækjum sem sett hafa verið á unga haferni sýna þó að helstu flug­leiðir þeirra liggja ekki um fram­kvæmda­svæðið heldur með­fram ströndum Breið­ar­fjarðar ann­ars vegar og hins­vegar með Laxá í Dölum“ kemur fram í und­ir­kafla skýrsl­unnar um fugla­líf á svæð­inu.

Vakin er athygli á að Stormorka ehf. stendur fyrir kynn­ing­ar­fundi á umhverf­is­mats­skýrslu þann 21. ágúst 2025 kl. 20:00 í Dalabúð. Öll sem vilja kynna sér fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd eru vel­komin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp