Hakkarar sitja greinilega ekki auðum höndum og hafa nú farið hamförum í að rústa íslenskum aðgöngum á samfélagsmiðlinum Instagram. Viðkomandi sem kallar sig Kingsanchezx á Instagram segist geta eytt hvaða aðgangi sem er sé hann beðin um það, þá væntanlega gegn greiðslu. Stóra spurningin er réð hann einhver til þess að loka þeim íslensku aðgöngum sem hann hefur nú þegar tekið niður og lokað eða er hann að taka fólk og fyrirtæki af handahófi ? Óvíst er hve mögum aðgöngum hann hefur grandað nú þegar. Að minnsta kosti er vitað til þess að þessir aðilar hafi lent í honum: Kristín Pétursdóttir, Birgitta Líf, Sunneva Einarsdóttir, Dóra Júlía og Patrekur Jaime. Þau hafa öll misst sína Instagram aðganga. Nú er hann byrjaður á fyrirtækjum !
Hótar að loka aðgangi íslensks fyrirtækis
Nú þegar er vitað til þess að téður hakkari er búin að granda aðgangi áhrifavaldanna Birgittu Lífar, Sunnevu Einars, Dóru Júlíu, Patreks Jaime og leikonunar Kristínar Pétursdóttur og nú rétt í þessu voru Mannlífi að berast fregnir að því að hótanir væru farnar að berast til fyrirtækisins Lovisu.is sem er fyrirtæki með hjálpatæki ástarlífsins. Eins og sjá má á skjáskotum hér neðst í fréttinni, er hann að biðja um greiðsluupplýsingar, frá viðskiptavinum þeirra að er virðist. Ef þau verði við því muni hann ekki loka aðganginum þeirra og sem bónus megi þau nefna hvaða Instagram sem er og hann muni þá granda þeim reikningi. Eigendi Lovisa.is, Jón Þór Ágústsson þverneitaði auðvitað að verða við þeirri bón mannsins.
Mannlíf hvetur fólk til þess að tilkynna aðganginn sem og blokka hann hjá sér svo að hann hafi síður aðgang að Instagram reikningum fólks og fyrirtækja.
Skjáskotin hér að neðan sýna samskipti hakkarans við eigendur Lovisa.is