Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur ákveðið að láta af formennsku í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins mun taka við sem formaður tímabundið.
Fréttatilkynningin í heild sinni:
„Umhverfis- og samgöngunefnd hefur nú verið óstarfhæf um tíma og hefur það truflar störf Alþingis. Ekki hefur verið fundað í nefndinni síðan 29. janúar. Þingflokksformenn allra flokka hafa leitað leiða til að vinna úr stöðunni, án árangurs. Samkvæmt samkomulagi um nefndarformennsku minnihlutans hefur kom þessi nefndarformennska í hlut Miðflokksins. Miðflokkurinn hefur ekki viljað skipta um sinn fulltrúa í nefndinni.
Bergþór Ólason hefur nú kosið að stíga til hliðar úr formannssætinu. Jón Gunnarsson mun taka við formennsku í nefndinni tímabundið á meðan reynt er að finna lausn í málinu sem allir geta sætt sig við. Ari Trausti Guðmundsson tekur við sem 1. varaformaður og Líneik Anna Sævarsdóttir verður 2. varaformaður.
Hluti af ábyrgð þeirra sem hafa meirihluta á Alþingi er að tryggja að störf þingsins geti gengið eðlilega fyrir sig. Því telja þingmenn stjórnarflokkanna eðlilegt að þetta sé lausnin á meðan samkomulag næst ekki um annað fyrirkomulag.
Það er öllum ljóst að um tímabundna lausn sé að ræða til að koma störfum nefndarinnar í rétt horf. Ef og þegar aðstæður breytast eru stjórnarflokkarnir reiðubúnir að endurskoða þessa stöðu og telja raunar mikilvægt að slíkt endurmat eigi sér stað fyrir þinglok. Þar sem hér er um tímabundna ráðstöfun að ræða líta stjórnarflokkarnir ekki svo á að taka þurfi upp allt samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu um formennsku í fastanefndum Alþingis að svo stöddu.“