- Auglýsing -
Í gær greindust 16 einstaklingar með Covid-19 innanlands og af þeim voru 10 utan sóttkvíar. Einn greindist á landamærunum á sama tíma.
Frá þessu greina Almannavarnir í tilkynningu en þar kemur ekki fram hversu margir hinna smituðu eru fullbólusettir. Eftir gærdaginn fóru nærri 400 í sóttkví og eru í dag 124 í einangrun með sjúkdóminn.
Um helgina var einn lagður inn á sjúkrahús vegna Covid-19 og var það í fyrsta sinn í nokkrar vikur sem það gerist.