95 manns greindust með Covid-19 í gær en ekki hafa greinst svo margir á einu degi á öllu þessu ári.
75 manns voru utan sóttkvíar og 20 í sóttkví. Samkvæmt nýjustu tölum inn á Covid.is eru fjórir inniliggjandi á sjúkrahúsi.
1.266 eru nú í sóttkví og 463 í einangrun. Fjölgað hefur um 223 í sóttkví og 92 í einangrun síðan í fyrradag.
Hertar aðgerðir
Hertar aðgerðir sem tilkynntar voru í gær taka gildi á miðnætti í kvöld. Þá mega einungis 200 manns koma saman, 1 metra reglan tekin upp, opnunartími skemmtistaða verður til klukkan 23:00 og verður síðasti maður að vera kominn út klukkan 00:00.
Sundlaugum og líkamsræktarstöðvum verður leyft að taka 75 prósent af leyfilegum fjölda undir eðlilegum kringumstæðum.