Inn á hópnum Costco – Gleði á Facebook setur Valdimar nokkur, innlegg sem vakið hefur kátínu í hópnum. Hann setti mynd af mygluðum amerískum pylsubrauðum og sagði: „Hefur einhver smakkað pulsubrauðin í costco? Hvort er betra með eða án þessu græna? Eða er kannski bara betra að halda sig við Íslenskt?“
Svörin létu sko ekki á sér standa: Helga sagði farir sínar ekki sléttar: „Ætlaði að kaupa hindber í gær (fimmtudag) og allir pakkarnir sem ég skoðaði voru loðnir af myglu. Rosalegt bara að bjóða upp á þetta“. Ingibjörgu þykir allt vænt sem vel er grænt: „Þetta græna gefur góðan kæstan keim“. Jónu líst ekki alveg á neikvæðnina í garð Costco og segir: „FÖGNUM ÞVÍ SEM GOTT ER… EKKI endalaust að finna alltaf að …þetta kemur fyrir í öllum verslunum og hefur alltaf gerst…. MEIRA segja heima hjá ykkur…. ÁFRAM COSTCO.IS“.
Fjölmörg skemmtileg svör sem hann Valdimar fékk og þau má sjá hér.
Annars er Costco – Gleði hópurinn mjög skemmtilegur hópur sem vert er að fylgjast með.