- Auglýsing -
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, tekur ekki undir með þeim sem saka ríkisstjórnina um að hafa brugðist þjóðinni með því að opna landið og hleypa faraldrinum á fulla ferð. Hann segir að í sóttvörnum að þessari gerð verði að breyta stefnunni frá degi til dags og bregðast við gögnum. Hann segir á visir.is að ríkisstjórnin sé að haga sér af áyrgð með því að bregðast við breyttum aðstæðum og það sé bara kjaftæði að tala um að ríkisstjórnin hafi gengið á bak orða sinna. Kári segir að málin varðandi þróun faraldsins og skaðann skýrast á næstu dögum …