Örn nokkur er ekki sáttur og telur okrið hafa náð hæstu hæðum á límbandsrúllu sem hann festi kaup á hjá Húsasmiðjunni. Rúllan kostaði 699 krónur. Frá þessu greinir hann inni á Facebook hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi, sem haldið er úti af verðlagseftirliti ASÍ.
„Vantaði eina rúllu af glæru umbúða teypi. Nennti ekki að gera verðkönnun á svona smáræði. En þetta verð meikar engan senz. Ógeðslegt okur dagsins“ segir Örn í færslu sinni og birtir myndir af límbandsrúllunni og strimlinum úr Húsasmiðjunni, sjá hér að neðan.
Meðlimir úr hópnum láta í ljós sínar skoðanir og reynslu í ummælum undir færslunni:
Haffi segir: „Þú færð ca 3 stk í Costco á þessu verði“. Hlín vill leysa vandan með því að taka upp evruna: „Það er allt dýrt á Íslandi, burt með krónuna og taka upp evru“. Kristján er ekki jafn viss um að það sé rétta lausnin og svarar Hlín: „Trúir þú í alvöru að verð lækki þó það sé skipt um gjaldeyri?“ Hlín svarar Kristjáni þá játandi. Áslaugu þykir þetta kostakaup miðað við hvað hún borgaði fyrir rúllu í Byko: „Það er nú ekki langt síðan ég keypti eina rúllu í Byko og hún kostaði rúmar þúsund krónur. Svo ég fer næst í Húsasmiðjuna“.
Egill setur inn hlekk á Múlalund sem sýnir sambærilegt límband á 289 krónur. Jakobína reynir að horfa á hlutina öðruvísi: „Þetta er kannski dýr rúlla ef þú ætlar að nota bara lítið af henni og henda eða týna rest en oft á maður slatta afgangs sem kemur að góðum notum seinna og þá er rúlluverðið ekki mikið. Verð í hugum fólks er svakalega mismunandi. Ég lít alltaf á magn gæði og nýtingartíma“. Jóhann segir: „Næs, ekki í fyrsta skiptið sem Húsasmiðjan smyr á vörurnar og alls ekki það síðasta. Sniðganga svona okur og ekki er Byko skárri“.