Samkvæmt niðurstöðum úr könnun sem mennta- og menningarmálaráðuneytið lét framkvæma bera einungis fjörutíu prósent starfsmanna ráðuneytisins traust til Arnórs Guðmundssonar forstjóra Menntamálastofnunar
Samkvæmt niðurstöðum áðurnefndrar könnunnar hafa þrettán prósent starfsmanna orðið fyrir einelti í starfi undanfarið ár; fjórðungur starfsmanna segist hafa orðið vitni að einelti.
Var svarhlutfall könnunarinnar hjá starfsmönnum stofnunarinnar níutíu og átta prósent.
Menntamálastofnun tók til starfa haustið 2015 og eru starfsmenn stofnunarinnar rúmlega sextíu.
Eftir því sem Mannlíf kemst næst hafa fimm starfsmenn lagt inn uppsagnarbréf vegna meintra eineltistilburða Arnórs og stjórnunarvandamála í tengslum við meint eineltið.
Þá herma heimildir Mannlífs að ef ekkert verður að gert vegna meints eineltis Arnórs muni uppsagnarbréfunum fjölga ört á næstunni.
Arnór hefur starfað undanfarin fimm ár sem forstjóri Menntamálastofnunar; áður starfaði hann hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti sem skrifstofustjóri, þróunarstjóri og deildarstjóri.
Arnór er hámenntaður maður; er með doktorsgráðu í félagsfræði frá University of Minnesota sem og B.A. gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands; Arnór lauk einnig diplómanámi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Endurmenntun Háskóla Íslands.