Hið rómaða blað Þroskahefti hefur nú litið dagsins ljós í Vestmannaeyjum.
Að venju er blaðið stútfullt af gríðarlega ferskum húmor sem segja má að sé svo byltingarkenndur að hann skýtur Radíus-bræðrum og Fóstbræðrum ref fyrir rass hvað varðar nýja sýn á húmor hér á landi; húmoristarnir sem gefa út Þroskahefti eru svo hugmyndaríkir í nálgun sinni að þeir ná að endurskapa þann húmor sem ríkti hér á landi árið 1987 með algjörlega nýju tvisti.
Útkoman er á einhvern hátt svo sorglega og hryllilega fyndin að hún gefur klárlega þau skilaboð til markaðsmanna útgáfufyrirtækja hér á landi að markaður fyrir blöð á borð við Brandarablaðið og Bósa er fyrir hendi.
Stórkostlegt framtak og vel í takti við nýja tíma og almenna umræðu í íslensku samfélagi dagsins í dag.
Svona á að gera þetta.
Njótið.