Formaður velferðarnefndar Alþingis, þingmaður Samfylkingarinnar, lögfræðingurinn og leikkonan Helga Vala Helgadóttir segir „ljóst að sóttvarnalæknir telji að ríkisstjórnin hafi ekki hlustað á tillögur hans um aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 hér á landi.“
Hún bendir á að Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir „sé augljóslega að segja að ríkisstjórnin sé ekki lengur að hlusta á okkur; þannig að hún ber ábyrgð á þeim aðgerðum sem þau fara í.“
Helga Vala segir að velferðarnefndin – sem hún hefur stýrt sem formaður frá árinu 2019 verði einfaldlega að „spyrja út í stöðuna og út í faraldurinn sjálfan,“ og fá skýr svör sem henni finnst tilfinnilega vanta varðandi Covid 19 hér á landi, sérstaklega í ljósi þess hversu faraldurinn hefur breiðst hratt út að undanförnu og smitum fjölgað gríðarlega í takt við það.
Og Helga Vala spyr hvort „ríkisstjórnin er í einhverju þagnarbindindi eða eru fjölmiðlar bara svona tillitssamir við þau í sumarfríinu?“
Bætir við:
„Um helgina hitti ég kvíðna skólamanneskju sem kallaði eftir því að stjórnvöld yrðu tilbúin með lausn og ákvarðanir þegar framhaldsskólarnir byrja, því það væri bara alls ekki hægt að fara inn í enn eina önnina með allt í uppnámi. Auðvitað eru þetta fordæmalausir tímar en nú verðum við að átta okkur á því að það þarf að gæta að annars konar heilsu líka; geðheilsunni, og geðheilsa, þroski og framtíð ungmenna er í húfi hérna. Svo eru þessir tímar hættir að vera fordæmalausir eftir 18 mánuði!
Helga Vala bendir á að „í Danmörku hafa framhaldsskólakrakkar einfaldlega þurft að sýna hraðpróf vikulega til að fá að mæta og eru slíkar sýnatökustöðvar víðs vegar um landið. Auðvitað eigum við að stefna á eitthvað svipað því við getum ekki fórnað heilli kynslóð í það að missa algjörlega af þessum dýrmæta tíma í þroskaferlinu. Menntamálaráðherra verður að taka af skarið og fjölmiðlar að inna hana og aðra ráðherra eftir svörum og það strax. Skólarnir hefjast eftir tvær til þrjár vikur!“